bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

vesen með rúðuþurkur og útvarp í E39
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=51830
Page 1 of 1

Author:  Andrynn [ Sat 02. Jul 2011 15:19 ]
Post subject:  vesen með rúðuþurkur og útvarp í E39

Rúðuþurkurnar hjá mér eru þannig að þær hreyfast eðlilega alla leið, en stoppa þegar þær eru búnar að fara ca 5 cm upp, en samt hreyfast þær alla leið, alveg upp og alveg niður. Svo er letinginn á þurkunum í tómu tjóni líka, þurkurnar eru voðalega sjálfstæðar þar. Hefur mótorinn þá náð að hrökkva til um eina tönn miðað við þurkurnar eða er stjórn draslið fyrir þetta bara búið að gefast upp?

Útvarpið í bílnum dettur annaðslagið út, eins og að það fari stundum á Mute, en kemur svo inn aftur. Samt heyrir maður suð þegar maður hækkar vel í því. Útvarpið er þessum bíl er með minni sjónvarpsskjánum. Eina sem mér datt í hug væri hvort að síminn væri að ruggla þetta einhvað?

Það væri mjöög gott ef að einhver kæmi með svör við þessu :D

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/