Jebb, finnst það nú - alveg ótrúlega slöpp hreinlega. Ekki að ég hafi í sjálfu sér eitthvað vit á því, man bara ekki eftir að hafa þurft að skipta um slíkt áður á nokkrum þeirra bíla sem ég hef átt.
Annars var ég búinn að sjá á google þegar ég var eitthvað að reyna að átta mig á þessu að háspennukeflin væru veiki hlekkurinn í þessari vél og margir þræðir til þess efnis. Þessar elskur hafa allar sína veikleika og miðað við síðasta BMW sem ég átti (e46 320d) þá veldur þetta mér minna hugarangri en skrambans swirl flaps vesenið. Verður maður ekki annars að horfa á jákvæðu hliðarnar?
