þegar ég ætlaði í vinnuna í morgun þá startaði ég bílnum og keyrði afstað. áður en að ég var kominn út götuna þá fylltist bíllinn af reyk og húddið líka. ég drap á bílnum og tékkaði á tölvunni í húddinu og þar voru tveir vírar sem fara í eitt realaið búnir að brenna allt utan af sér og héldu bara áfram að neista þannig ég klipti á þá og tók myndir af þessu. ef einhver hefur einhverja hugmynd um hvað gæti valdið þessu þá meigiði endinlega segja mér. bíllinn er enþá gangfær en það sem er að klikkaði er bensínn mælirinn og hitinn á olíuni en það lagaðist alltíeinu svona 50 km eftir að þetta gerðist. það sem er enþá að angra mig er vatnshitamælirinn er ekki að virka og hann dettur ekki jafn mjúklega í lausaganginn. hann semsagt fer niðrí 800 snúninga og hoppar svo aftur í 1000 eins og hann á að vera í. hann gerði þetta aldrei áður.
þetta var neðsta realaið sem var með vesenið

þetta voru semsagt tveir rauðu vírarnir til vinstri

þeir eru semsagt búnir að bræða sig við breiðari rauða vírinn


