bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E32 neitar að aflæsa sér
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=51180
Page 1 of 1

Author:  srr [ Thu 19. May 2011 20:32 ]
Post subject:  E32 neitar að aflæsa sér

Ég er í bölvuðu veseni með 735i bílinn minn,,,1990 E32 735iA,,hann harðneitar að aflæsa hurðunum.
Ég er með nýjan lykil frá B&L sem er merktur "E" og hann hefur hingað til virkað að opna og læsa hurðum ásamt því að setja í gang.
Núna þegar ég sný lyklinum í normal aflæsingarstöðu þá gerist ekki neitt, heyrist ekki í mótorunum að reyna aflæsa eða neitt.
Ef ég sný í læsingarstöðu aftur á móti, þá heyrist í öllum móturunum læsa.

Ég er búinn að prufa að fara farþegamegin að framan, lyfta upp handfanginu og snúa lengra til hægri en það gerist ekkert heldur.
Lykilinn kemst lengra þannig en hann aflæsir engu né lyftir pinnanum á hurðinni.

Ég er alveg stomped,,,,búinn að lesa mig til um allt varðandi svona en það virðist allt einkennast
af því ef bíllinn var rafmagnslaus, sem þessi er ekki.

Er einhver sem getur varpað ljósi á þetta vandamál mitt? :?

Author:  auðun [ Thu 19. May 2011 21:47 ]
Post subject:  Re: E32 neitar að aflæsa sér

er þetta ekki bara BMW.. bíllinn hjá mér var þannig að þegar ég læsti honum eða opnaði þá læsti hann sér strax aftur eða opnaði eftir því hvað átti við og í annað skipti virkaði það. Það átti að vera einhver hurðarrofi að framan sem var ekkert mál. svo núna fór hann að taka uppá því að læsa sér bara alltíeinu uppúr þurru á bílaplaninu yfir nótt eða úti að keyra og á sama tíma þá detta rúður og sóllúga út. svo bara opnast hann altíeinu og þá eru rúðurnar í lagi. voðalega furðulegt allt.

Author:  GunniT [ Thu 19. May 2011 22:02 ]
Post subject:  Re: E32 neitar að aflæsa sér

Hjá mér á e36 þá get ég læst bílnum með ferjunarlyklinum en ekki opnað, pantaði svo master key þá virkar þetta í báðar áttir læsa og opna..

Author:  srr [ Thu 19. May 2011 22:06 ]
Post subject:  Re: E32 neitar að aflæsa sér

Jæja, æðislegt.

Braut lykilinn í skottlæsingunni áðan við að reyna ná henni til að opna skottið.
Eini lykill,,,,,er því brotinn í skottlæsingunni.

Ég get fengið complete lock set í bílinn,,,,,,en þá er spurningin, er hægt að ná ignition barrelinu úr stýrinu án þess að hafa lykil ?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/