Ég er í bölvuðu veseni með 735i bílinn minn,,,1990 E32 735iA,,hann harðneitar að aflæsa hurðunum.
Ég er með nýjan lykil frá B&L sem er merktur "E" og hann hefur hingað til virkað að opna og læsa hurðum ásamt því að setja í gang.
Núna þegar ég sný lyklinum í normal aflæsingarstöðu þá gerist ekki neitt, heyrist ekki í mótorunum að reyna aflæsa eða neitt.
Ef ég sný í læsingarstöðu aftur á móti, þá heyrist í öllum móturunum læsa.
Ég er búinn að prufa að fara farþegamegin að framan, lyfta upp handfanginu og snúa lengra til hægri en það gerist ekkert heldur.
Lykilinn kemst lengra þannig en hann aflæsir engu né lyftir pinnanum á hurðinni.
Ég er alveg stomped,,,,búinn að lesa mig til um allt varðandi svona en það virðist allt einkennast
af því ef bíllinn var rafmagnslaus, sem þessi er ekki.
Er einhver sem getur varpað ljósi á þetta vandamál mitt?
