Var með svona í E39 bílnum mínum og þá vildi ég meina að hann eyddi minna. Svo þegar ég keypti clioinn fór ég til tilbreytingar að hugsa og þá komst ég að þeirri niðurstöðu að því að þetta gæti ekki virkað og setti þetta því upp í hillu.
Nú á eg svo eftir að gera vísindalegar prófanir á því hvort þetta virkar eða ekki
Posted: Sat 20. Mar 2004 20:27
by ///Matti
Var eikkver svaða hávaði í þessu?
Posted: Sat 20. Mar 2004 20:33
by Svezel
Nei nei, það rétt vottar fyrir þessu þegar það er slökkt á miðstöðinni og maður er að þenja á ljósum eða eitthvað.
Þetta er svona eins og einhver standi fyrir utan gluggann og sé að klára að sjúga síðustu dropanna úr kókdós í gegnum rör
Posted: Sat 20. Mar 2004 21:07
by saemi
Ehehehehehehee....
Ég hata þegar það er fólk að gera svoleiðis... ekkert smá pirrandi
Posted: Sat 20. Mar 2004 21:13
by bebecar
Ég held ég myndi ekki meika svona sogrörahljóð - fer GEÐVEIKISLEGA í taugarnar á mér
Posted: Sun 21. Mar 2004 19:45
by ///Matti
Jamm,maður er allavega búin að panta 1 stykki,atla að prufa þetta
Posted: Sun 21. Mar 2004 23:26
by iar
bebecar wrote:Ég held ég myndi ekki meika svona sogrörahljóð - fer GEÐVEIKISLEGA í taugarnar á mér
Yamm, óþolandi þegar svoleiðis lið situr fyrir aftan mann í bíó.