bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E39 530d kælikerfi. edit: framhald. VANDAMÁL LEYST https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=50439 |
Page 1 of 2 |
Author: | Orri Þorkell [ Thu 07. Apr 2011 18:23 ] |
Post subject: | E39 530d kælikerfi. edit: framhald. VANDAMÁL LEYST |
er það eðlilegt á 530d að hann sé 20min að hitna í langkeyrslu á lágun snúning? þegar hann er orðinn heitur og maður fer niður langa brekku þá dettur hitinn niður um 1/4 og er örugglega 5min að fara uppí miðjuna aftur. það er nýr vatnslás í honum og nýr kælivökti og er búið að lofttæma FRAMHALD: var að skipta um EGR thermostatið og bíllinn er u.þ.b. 3x fljótari að hitna. nú er komið nýtt vandamál, bíllinn er farinn að reykja duglega, sýndist þetta vera hvítur reikur, fór að gera þetta um leið og hann hitnaði eftir að ég skipti um þetta. Fannst þetta vera það mikill reikur að kannski að túrbínan væri á leiðinni að fara, en svo virðist ekki vera, hún virðist alveg gera sitt og nákvæmlega eins hljóð í henni og er alltaf og kemur inn á nákvæmlega sama stað á snúningnum. allavega eftir að ég var búin að skipta um þetta thermostat (eða vatnslás) þá lét ég hann ganga aðeins og lofttæmdi svo, keyrði hann svo aðeins og lofttæmdi aftur en það kom ekkert loft þá, það virðist ekkert vera búið að lækka í forðabúrinu og vökvinn er ennþá alveg jafn grænn og hann var þegar ég setti hann í. finnst eins og þetta gæti verið eitthvað með þetta egr system, það er ekki búið að virka í mjög langan tíma sennilega búið að hitna mjög mikið og mjög oft áður en þess að hafa rennsli i gegnum sig. Ef það smitar eitthvað þar hlítur það að smita út og enda sem reikur og útum pústið aftur. ![]() skipti um stk nr 14 á myndinni, spurning hvort unitið sem kælivatnið rennur í gegnum leki. minnir að ef það sé blár reikur þá sé það olía en ef það sé hvítur sé það eitthvað annað t.d. vatn |
Author: | dabbiso0 [ Fri 08. Apr 2011 13:02 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi |
Þeir eru mjög lengi að hitna á veturna..... |
Author: | Orri Þorkell [ Sat 09. Apr 2011 12:01 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi |
já, er mikið að pæla í því að gera smá modification og breyta webasto þannig hann hiti vélina þegar hann er ekki í gangi (tímastilli) |
Author: | dabbiso0 [ Sat 09. Apr 2011 16:10 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi |
Það gæti líka verið að EGR ventillinn hjá þér sé fastur lokaður.. Þegar ég var með hann þvingaðan lokaðan var vélin mun lengur að hitna |
Author: | IvanAnders [ Sat 09. Apr 2011 19:14 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi |
Það er eðlilegt að hann sé lengi að hitna, en alls ekki eðlilegt að hann sé að kólna á ferðinni! |
Author: | Orri Þorkell [ Tue 12. Apr 2011 16:04 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi |
dabbiso0 wrote: Það gæti líka verið að EGR ventillinn hjá þér sé fastur lokaður.. Þegar ég var með hann þvingaðan lokaðan var vélin mun lengur að hitna þarf að kíkja á hann, hlítur að vera fastur, er hálfpartinn að vona það mjög böggandi að hann sé svona lengi að hitna |
Author: | Orri Þorkell [ Fri 15. Apr 2011 03:25 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi |
EGR var fastur, hreinsaði hann og liðkaði hann upp veit ekki hvort ég náði honum nógu liðugum. kemur í ljós |
Author: | Orri Þorkell [ Sat 16. Apr 2011 15:51 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi |
bíllinn er alveg eins, þá er það bara EGR thermostatið sem kemur til greina |
Author: | Orri Þorkell [ Thu 21. Apr 2011 01:07 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi. edit: framhald |
framhald |
Author: | Orri Þorkell [ Thu 28. Apr 2011 04:12 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi. edit: framhald |
vandamál leyst, þetta var öndunarsían, eða skilvindusían (oil separator) sem er í boxi við hliðiná loftsíunni. Hún var stífluð, ekki vottur af reik nuna hvort sem hann er í lausagangi, inngjöf eða í snöggri inngjöf og mikill munur á vinnslunni, fjótari að taka við sér |
Author: | Orri Þorkell [ Thu 28. Apr 2011 04:14 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi. edit: framhald |
hægt að sjá þetta hérna http://home.tiscali.nl/luuk60/ |
Author: | ppp [ Thu 28. Apr 2011 14:23 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi. edit: framhald. VANDAMÁL LEYST |
Ætlaði bara að segja að þú ert hetja fyrir að pósta hérna hvað var að. Það á ábyggilega einhver úr framtíðinni eftir að ferðast í þennan þráð með sama vandamál. |
Author: | Orri Þorkell [ Fri 29. Apr 2011 01:33 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi. edit: framhald. VANDAMÁL LEYST |
þakka þér þessi öndunarsía er eitthvað sem getur stútað túrbínunni þótt túrbínan og allt annað sé í toppstandi. það er ekki mikið mál og ekki tímafrekt að skipt um þessa síu, og á víst að gera í öðruhverjum olíuskiptum (ekki verið gert á mínum) muna bara að ef þú ætlar að taka intake manifoldið af og þrífa það í guðana bænum passaðu appelsínugulu járn/gúmmí skinnurnar sem eru á boltunum, þær eiga það til að hanga ekki á þá geta þær dottið ofaní þegar þú tekur manifoldið upp ég sé reyndar að á bmw5.co.uk hafa menn verið að setja þennan sama búnað í úr E60, þar er það ekki sía heldur skilja sem á ekki að stíflast. |
Author: | Saxi [ Tue 03. Jan 2012 11:15 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi. edit: framhald. VANDAMÁL LEYST |
Loksins fann ég þennan þráð. Er einmitt með X5 sem hagar sér svona. Lengi að hitna og kólnar á ferðinni. Ætla að kíkja á þetta. kærar þakkir. |
Author: | Orri Þorkell [ Tue 03. Jan 2012 18:38 ] |
Post subject: | Re: E39 530d kælikerfi. edit: framhald. VANDAMÁL LEYST |
já nú er einmitt tíminn til að hafa þetta í lagi, vona bara þú komist með hann inn (-8 úti) og það sé þægilegra að komast að þessu hjá þér. ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |