Page 1 of 1

Hvað eru menn að kaupa þegar þeir taka í gegn drifin sín?

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 12:32
by jon mar
Sælir.

Hafði titilinn býsna lýsandi svo Sæmi Flug yrði hamingjusamur :wink: :lol:

Á næstu dögum og vikum hafði ég hugsað mér að taka í gegn eitt LSD drif sem ég er með í höndunum.

Ég hef reiknað með því að það þurfi að skipta um einhverja o-hringi og pakkdósir ásamt pakkningum.

Eru menn bara að kaupa þetta í setti?? Samskonar og er hér nr #2 http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=33&fg=05

Nú eða jafnvel þetta sem ég fann á pelican parts : http://www.pelicanparts.com/cgi-bin/sma ... 1991-93%29

Bara spurning hvort það er hægt að fá þetta allt í einu eða hvort maður þarf að kaupa þetta stakt á stóru fjárhæðirnar.

Re: Hvað eru menn að kaupa þegar þeir taka í gegn drifin sín

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 12:51
by Alpina
Er ástandið þannig að þú metur að skipta þarf um pakkdósir osfrv.. eða fyrirbyggjandi viðhald

Re: Hvað eru menn að kaupa þegar þeir taka í gegn drifin sín

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 12:53
by jon mar
Alpina wrote:Er ástandið þannig að þú metur að skipta þarf um pakkdósir osfrv.. eða fyrirbyggjandi viðhald



Sittlítið af hvoru skulum við bara segja :)

Re: Hvað eru menn að kaupa þegar þeir taka í gegn drifin sín

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 17:56
by jon mar
hafa menn sumsé ekkert um málið að segja??

Nú hafa fjölmargir hérna inni tekið sitt í gegn og ættu að vita :D

Re: Hvað eru menn að kaupa þegar þeir taka í gegn drifin sín

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 19:10
by sh4rk
Jón er ekki bara spurning hvort það sé ekki ódýrara að kaupa bara pakkdósinar eftir málum í Fálkanum og nota svo bara pakkningalím

Re: Hvað eru menn að kaupa þegar þeir taka í gegn drifin sín

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 19:40
by jon mar
Ég veit af þeim möguleika, en gaman að vita hvort menn hafi verið að standa í hinu.

Það er nú verslun hér á ak sem sérhæfir sig í pakkdósum og allskonar svona véladrasli, þannig það er ekki vesenið.

Re: Hvað eru menn að kaupa þegar þeir taka í gegn drifin sín

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 19:46
by ömmudriver
jon mar wrote:Ég veit af þeim möguleika, en gaman að vita hvort menn hafi verið að standa í hinu.

Það er nú verslun hér á ak sem sérhæfir sig í pakkdósum og allskonar svona véladrasli, þannig það er ekki vesenið.


Ég hef verið að hugleiða það að taka drifið í gegn og vafraði einmitt í gegnum http://www.pelicanparts.com og sá þar OEM pakkningu fyrir driflokið á klink ásamt öllu öðru sem þarf til þess að snurfusa eitt stykki drif.

En ég ætla að bíða þangað til ég er kominn með drifið í hendurnar og ákveða þá hvort að ég geri þetta núna strax eða næsta vetur :)

Re: Hvað eru menn að kaupa þegar þeir taka í gegn drifin sín

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 20:13
by saemi
jon mar wrote:Sælir.

Hafði titilinn býsna lýsandi svo Sæmi Flug yrði hamingjusamur :wink: :lol:

Á næstu dögum og vikum hafði ég hugsað mér að taka í gegn eitt LSD drif sem ég er með í höndunum.

Ég hef reiknað með því að það þurfi að skipta um einhverja o-hringi og pakkdósir ásamt pakkningum.

Eru menn bara að kaupa þetta í setti?? Samskonar og er hér nr #2 http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=33&fg=05

Nú eða jafnvel þetta sem ég fann á pelican parts : http://www.pelicanparts.com/cgi-bin/sma ... 1991-93%29

Bara spurning hvort það er hægt að fá þetta allt í einu eða hvort maður þarf að kaupa þetta stakt á stóru fjárhæðirnar.



:thup: Svona á að gera þetta

Re: Hvað eru menn að kaupa þegar þeir taka í gegn drifin sín

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 22:57
by birkire
keypti uttakspakkdósir i tb um árið og driflokspakkningu i bogl þegar eg reif mitt i sundur