bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti - Meira
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=49766
Page 1 of 1

Author:  H1lmar [ Sat 26. Feb 2011 18:54 ]
Post subject:  Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti - Meira

Var að skipta um heddpakkingu og meðfylgjandi í e30 325ix '88, lét taka upp heddið í leiðinni, plana og skipta um ventlaþéttingar af fagmanni. Allt fór saman frekar smooth en þegar ég setti í gang þá tikkar mótorinn alveg öfga mikið, það mikið að ég vil ekki setja hann í gang án þess að gera eitthvað fyrst. En virðist ekki ganga asnalega meðan hann gengur. Svo helst hann ekki hjálparlaust í gangi. Mótorinn steinþagði áður en hann var opnaður og gekk vel.

Svo er eitthvað rafmagnsstýrt vakúmdót sem ég hef ekki hugmynd um hvar var eða hvert fer, og grunar að það sé að valda gangveseninu. En hvað þetta tikk gæti verið veit ég ekki.

Ég margtékkaði að tíminn væri réttur og sneri mótornum örugglega hátt í 10 hringi meðan ég gerði það. Tíminn á heddinu var ca réttur þegar það fór á, leit líka undir það áður en ég setti það á að engir ventlar stæðu niðri án þess að eiga að gera það.

Nóg er af olíu.
Mótorinn var rifinn fyrir mánuði og bíllinn var inni í upphituðum skúr allan tímann með breitt yfir mótorinn.

Er búinn að láta hann 3-4 sinnum í gang, í nokkrar sek, þori ekki að láta hann ganga meira án þess að laga tikkið. Á hann ekki að ná upp smurþrýsting á þessum tíma? Þarf ég að rífa ventlalokið af og hella olíu á þetta allt til að "prime-a" allt svo hann gangi ekki þurr?

Vakúmdótið sést liggja milli tölvuplöggsins og lofthreinsarans. Það liggur niður í einhvern hólk undir bremsuboosternum.
Image

Author:  crashed [ Sat 26. Feb 2011 19:07 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti

hljómar eins og ónítar undirliftur eða sem er lýklegra að það hafi ekki verið ventlastilt heddið

Author:  Einarsss [ Sat 26. Feb 2011 19:23 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti

crashed wrote:
hljómar eins og ónítar undirliftur eða sem er lýklegra að það hafi ekki verið ventlastilt heddið


Á ekki bara eftir að ventlastilla eftir að þú fékkst heddið til baka? Heddin eru ekki ventlastillt á verkstæðinu án þess að vera komin á mótorinn... veit um einn sem klikkaði á þessu og tapaði hann nokkrum róum og skinnum niðrí olíupönnu því þetta var bara hert með fingrum.

Author:  H1lmar [ Sat 26. Feb 2011 19:23 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti

Þarna kom það, á eftir að ventlastilla. Feiluðum gjörsamlega á að muna eftir því. Hugsaði ekki einusinni útí það. :oops:

Hver getur ventlastillt fyrir mig, sendið á mig pm ef einhver getur það fyrir smá aur.

Author:  Einarsss [ Sat 26. Feb 2011 19:27 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti

gerir þetta bara sjálfur, alls ekki erfitt.

Þarft föler (feeler gauge) minnir að blaðið þurfi að vera 0.025mm á köldum mótor.

hérna er ágætlega ítarlegt DIY

http://www.pelicanparts.com/bmw/techart ... Adjust.htm

Author:  H1lmar [ Sat 26. Feb 2011 19:32 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti

Takk fyrir þetta, þarf að grafa upp fölerinn. Redda þessu sjálfur.

Þakka hjálpina. Trúi ekki að mér hafi yfirsést svona stór partur af aðgerðinni. :thup:

Author:  H1lmar [ Sat 26. Feb 2011 21:57 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti

Jæja, nú gengur hann eins og klukka en helst ekki í gangi. Líklega vakúmtengt, hvar á ég að leita?

Author:  H1lmar [ Sat 26. Feb 2011 22:09 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti - Meira

Spes, tók lausagangsventilinn úr sambandi og gangsetti - eins

Tók mafinn úr sambandi, rétt drullaðist til að ganga og setti hann svo í samband, rétt koðnaði niður og gengur núna fínt.

Veit ekki hvað ég gerði en þetta reddaðist.

Author:  srr [ Sat 26. Feb 2011 22:17 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti - Meira

H1lmar wrote:
Spes, tók lausagangsventilinn úr sambandi og gangsetti - eins

Tók mafinn úr sambandi, rétt drullaðist til að ganga og setti hann svo í samband, rétt koðnaði niður og gengur núna fínt.

Veit ekki hvað ég gerði en þetta reddaðist.

Fikt lagar allt :thup:

Author:  Einarsss [ Sat 26. Feb 2011 22:27 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti - Meira

H1lmar wrote:
Spes, tók lausagangsventilinn úr sambandi og gangsetti - eins

Tók mafinn úr sambandi, rétt drullaðist til að ganga og setti hann svo í samband, rétt koðnaði niður og gengur núna fínt.

Veit ekki hvað ég gerði en þetta reddaðist.



Sennilega var tölvan að "læra" inná icv þennan tíma sem hann er í gangi.. mundi eftir þessu þegar ég var að lesa þetta :D Ef straumurinn fer af tölvunni í einhvern tíma þá tæmir hún þetta minni og getur tekið 5-15 mín fyrir tölvuna að stilla sig rétt aftur

Author:  Aron Andrew [ Sat 26. Feb 2011 22:31 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti - Meira

Vertu bara feginn að þú varst ekki farinn út á krísuvíkurveg að prufa að boosta áður en þú fattaðir að þú gleymdir að ventlastilla :oops: :lol:

Author:  Einarsss [ Sat 26. Feb 2011 22:32 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti - Meira

Aron Andrew wrote:
Vertu bara feginn að þú varst ekki farinn út á krísuvíkurveg að prufa að boosta áður en þú fattaðir að þú gleymdir að ventlastilla :oops: :lol:



:rofl:

Gerir það ekki aftur!

Author:  H1lmar [ Sun 27. Feb 2011 01:42 ]
Post subject:  Re: Ves með M20 eftir heddpakkningarskipti - Meira

Sá það áðan eftir betri athugun að hosan milli lofthreinsara og soggreinar var mega rifin að neðanverðu, hefur verið á síðasta snúning og rifnað þegar ég var að rífa hana úr. Breyttist alltaf mega gangurinn þegar ég tók mafinn úr sambandi, stundum gekk hann bara ekki þegar mafinn var í sambandi. Var að draga þvílíkt falskt loft. Fékk lánað lofthreinsara og hosuna úr bílnum hjá Tinna og hann er búinn að vera mjög solid í kvöld eftir það, engin hita eða gangvandamál. Eyðslan orðin þokkaleg miðað við hvernig hún var og allt í fínu bara.

Vantar bara að skipta um þessa hosu og athuga hvort mafinn og gangurinn verði ekki til friðs þá.

Btw x-ið er alveg að gera sig eins og göturnar eru núna. :alien:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/