bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E39 M52TUB28 mótorvandræði https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=49566 |
Page 1 of 1 |
Author: | Þórólfur [ Mon 14. Feb 2011 11:20 ] |
Post subject: | E39 M52TUB28 mótorvandræði |
Sælir Kraftfélagar Ég er búinn að eiga núna í töluverðan tíma E39 528 og hef líkað vel við hann. Fyrir viku síðan bilaði vélin og niðurstaðan virðist vera sú að blokkin hafi sprungið og vatn hafi komist í olíuna. Ég stend því núna uppi með nýsprautaðan og fínan bíl en vélarvana ![]() Þar sem M52TUB28 virðist ekki liggja beint á lausu velti ég því fyrir mér hvort möguleiki sé á að setja í bílinn aðra vél. Ég er aðeins búinn að vera að skoða þetta á veraldarvefnum og ég sé ekki betur en að M54B30 sé sama blokkin en bara með aukna slaglengd. Veit einhver hvað það er mikið mál að skipta og setja þessa vél í í staðinn fyrir þá gömlu? Það væri nú ekki ónýtt að fá einhver auka hestöfl útúr þessu... Allar tillögur eru vel þegnar. |
Author: | Axel Jóhann [ Mon 14. Feb 2011 14:00 ] |
Post subject: | Re: E39 M52TUB28 mótorvandræði |
Ef þú setur aðra vél en er í honum þá þarftu að skipta út rafkerfinu og líklega þarf að kóða EWS upp á nýtt. Auðveldast er að fá alveg eins vél. En það er þannig séð ekki stórmál að skella annari vél í hann. |
Author: | JonHrafn [ Mon 14. Feb 2011 23:11 ] |
Post subject: | Re: E39 M52TUB28 mótorvandræði |
Ef þú ferð í aðra vél þá er eina vitið að eiga partabílinn eða hafa fullan aðgang að honum, því manni vantar alltaf eitthvað meira. |
Author: | Dannyp [ Mon 14. Feb 2011 23:57 ] |
Post subject: | Re: E39 M52TUB28 mótorvandræði |
Nökkvi wrote: Átti Nonni ekki M54B25? Hún ætti þá að ganga líka, er það ekki. Ætli það sé lítið mál að svissa á milli drive by wire og gamla dótsins? jens wrote: Sammála Nökkva, M54B25 gæti verið mótor sem hægt væri að fá hér heima. Spurning um að hella sér í rannsóknarvinnu á netinu og sjá hvort þetta hafi ekki verið gert ? ///MR HUNG wrote: Jú ég á hann með rafkerfinu. Smellir bara 2.5 í hann ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |