Page 1 of 1

Rafmagnsvesen í e46

PostPosted: Sat 12. Feb 2011 17:58
by leo709
Sælir, ég hef verið í vandræðum með rafmagnið í bílnum hjá mér, þetta lýsir sér þannig að þegar ég kveiki á bilnum þá flökta öll ljós í bílnum mælaborð, aðalljós, bara allur pakkinn.
Bíllinn hefur líka tekið uppá því tvisvar að sprengja báðar framperur stuttu eftir að hefur veirð kveikt á honum (nokkrum sekúndum síðar). Það er eins og það komi einhverjir spennutoppar eftir að nýbúið er að kveikja á bílnum en þó ekki alltaf.

Ég fór með hann í bekk um daginn og var þá villa frá altanator en maðurinn á verkstæðinu gat ekki sagt mér meira en það.

Ef einhver hefur lent í þessu eða veit hvað það er sem er að plaga mig væri frábært að fá svar við þessu.

Re: Rafmagnsvesen í e46

PostPosted: Sat 12. Feb 2011 18:37
by lacoste
Lélegt jarðsamband? Án þess að ég viti nokkuð um þetta.

Re: Rafmagnsvesen í e46

PostPosted: Sun 13. Feb 2011 15:44
by leo709
Ég var búinn að láta athuga jarðsambandið og það var í fínu lagi.

Re: Rafmagnsvesen í e46

PostPosted: Sun 13. Feb 2011 15:50
by ViggiRS

Re: Rafmagnsvesen í e46

PostPosted: Sun 13. Feb 2011 15:59
by Mr. Jones
Er ekki einhverskonar spennu jafnari í bílum ? Fór eitthvað svoleiðis í hjóli hjá mér þá sprengdi það alltaf perurnar og grillaði rafgeymin. Þetta er e-h að rifjast upp fyrir mér þetta heitir spennustillir og er í altenatornum.