bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Central body elektronics ?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=49289
Page 1 of 1

Author:  Mr. Jones [ Fri 28. Jan 2011 20:06 ]
Post subject:  Central body elektronics ?

Getur e-h frætt mig á því hvað þetta er CBE eru alveg svakalega mörg error á þessu hjá mér.

Author:  petur-26- [ Fri 28. Jan 2011 20:21 ]
Post subject:  Re: Central body elektronics ?

vuhu talvan komin igang hja .er

Author:  slapi [ Fri 28. Jan 2011 22:50 ]
Post subject:  Re: Central body elektronics ?

Núnú , komið eitthvað nýtt nafn á þetta hjá þér.

Annars heitir þetta í rauninni ZKE





eða General Module



eða Basic Module



Fer eftir hvaða deild þú talar við innan BMW

Author:  Mr. Jones [ Sat 29. Jan 2011 00:17 ]
Post subject:  Re: Central body elektronics ?

slapi wrote:
Núnú , komið eitthvað nýtt nafn á þetta hjá þér.

Annars heitir þetta í rauninni ZKE





eða General Module



eða Basic Module



Fer eftir hvaða deild þú talar við innan BMW

Tja ekki skírði ég þetta :!: þetta segir talvan en gaf lika þessa skammstöfun ZKE er samt engu nær hvað þetta er :?
Edit fann þetta :thup: Herra google segir þetta vera samlæsingar module, sem er skritið að hafi yfir 20 error því það er ekki og hefur ekki verið neitt vesen með þær.

Author:  slapi [ Sat 29. Jan 2011 10:56 ]
Post subject:  Re: Central body elektronics ?

Þetta er miklu meira en samlæsingar module

Author:  Mr. Jones [ Sat 29. Jan 2011 16:16 ]
Post subject:  Re: Central body elektronics ?

slapi wrote:
Þetta er miklu meira en samlæsingar module

Fann ágætis síðu um þetta :thup: svo þú þarft ekki að koma með fleiri hálfkveðnar vísur :thdown:

Author:  slapi [ Sat 29. Jan 2011 16:21 ]
Post subject:  Re: Central body elektronics ?

Menn læra ekkert ef allt er tuggið ofaní þá :thup:

Author:  jon mar [ Sat 29. Jan 2011 17:02 ]
Post subject:  Re: Central body elektronics ?

slapi wrote:
Menn læra ekkert ef allt er tuggið ofaní þá :thup:


Þó þú vinnir hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í bmw viðgerðum er ástæðulaust að nudda mönnum upp úr því að þeir fái ekkert að vita nema þeir komi inná kannt til ykkar.

Hélt alltaf að krafturinn væri staður þar sem menn gætu komið eftir ráðum og fá hjálp en ekki til að lesa auglýsingapósta hvar skal kaupa ráðin.

Author:  slapi [ Sat 29. Jan 2011 18:28 ]
Post subject:  Re: Central body elektronics ?

Ég vill að það sé á hreinu að þegar ég er hérna inn á kraftinum skrifa ég í nafni míns sjálfs en ekki þess fyrirtækis sem ég vinn hjá.

Ég styð lærdóm þannig að menn rekist á vandamál og afli sér sjálfir upplýsingar um það. Eins og þetta dæmi hérna hjá Mr.Jones þá bendi ég honum á 3 möguleg nöfn á þessu boxi en ZKE sé það sem sé talað um í daglegu máli þar sem hann var á villigötum með nafnið sem hann hafði. Við þetta sýnist mér ekki betur nema hann hafi úr ýmsu að vinna til að finna sínar upplýsingar því þurfti hann í raun enga hjálp.
Það vill nefnilega verða raunin hjá mönnum að þeir verða háðir hjálpinni og biðja um hana þó þeir þurfi ekkert á henni að halda

Ég reyni að vanda mín skrif hérna inná og eins og kemur fram í mínum profile þá er "Tæknilegar umræður" minn helsti staður á Kraftinum.

Ég hef ráðlagt mönnum mikið í gegnum tíðinna bæði í gegnum síma og í persónu innan , utan vinnu.

Og ég veit ekki til þess að nokkuð sé rukkað fyrir menn sem hringja inn í fyrirtækið sem ég vinn hjá og biðji um einhverjar upplýsingar. Það er hinsvegar eitthvað sem menn verða að bera virðingu fyrir.
Þetta þykir okkur skapa góða ímynd fyrir það fyrirtæki sem ég vinn hjá.

Author:  jon mar [ Sat 29. Jan 2011 20:39 ]
Post subject:  Re: Central body elektronics ?

Málefnalegt svar og gott.

Menn verða að geta bjargað sér sjálfir. Ég leitaði reyndar eftir einhverjum af þessum skammstöfunum á BFC td og fann ekki neitt samt.

Gott að menn læri sjálfir, ég bendi td mönnum mjög oft hvar finna á upplýsingarnar í stað þess að mata þá á þeim, sé ég spurður.

Author:  Mr. Jones [ Sun 30. Jan 2011 00:57 ]
Post subject:  Re: Central body elektronics ?

slapi wrote:
Menn læra ekkert ef allt er tuggið ofaní þá :thup:

Tja þannig lærði ég nú samt smíðar á sýnum tíma :lol: Vissi nú ekkert að þú innir hjá Eðalbílum fer alltaf í Tb, en jú svarið þitt kom mér á slóðina fannst bara vera e-h svona "attitude" í þessu.

Author:  Angelic0- [ Mon 31. Jan 2011 00:54 ]
Post subject:  Re: Central body elektronics ?

Step 1.

Hreinsaðu alla villukóðana :!:

Step 2.

Notaðu bílinn í einn dag, lestu hann aftur að kvöldi og sendu mér PM með hvaða villur koma upp og ég skal reyna að útskýra fyrir þér hvað getur verið að...

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/