Page 1 of 1
hátt rakastig

Posted:
Thu 02. Dec 2010 14:37
by sigridurma
Semsagt rakastigið er hrikalega hátt í bílnum hjá mér sem orsakar brjálað frost innan í bílnum á rúðunum, aðallega fram- og afturrúðunum, og þegar ég búin að eyða góðum tíma í að skafa framrúðuna með kortinu mínu kemur aftur móða og smá frost mjög fljótlega... hvað get ég gert til að minka rakastigið? og þar sem miðstöðin mín er orðin treg á því að blása heitu þá virkar lítið að nota hana til að minka rakastigið.
Re: hátt rakastig

Posted:
Thu 02. Dec 2010 14:44
by Einarsss
mögulega blautt teppið í bílnum, getur prófað að skella dagblöðum undir motturnar í nokkra daga til að reyna þurrka það upp.
Re: hátt rakastig

Posted:
Thu 02. Dec 2010 14:45
by gulli
Láta bílinn standa inni í hita í einhvern tíma.
Eða þú getur keypt þér rafmagns hitara í rúmfatalagernum (kostar slikk) og sett hann útí bíl á kvöldin yfir veturinn

Re: hátt rakastig

Posted:
Thu 02. Dec 2010 18:32
by birkire
Þrífa rúðurnar vel að innan og setja Rain-X Anti Fog á þær, fæst í N1 og bensinstöðvum minnir mig, dagblöð undir motturnar virkar líka. Var alltaf að lenda í þessu, hundleiðinlegt að þurfa skafa inní bílnm haha
Re: hátt rakastig

Posted:
Thu 02. Dec 2010 20:05
by iar
Myndi bæta við að tékka hvort frjókornasían sé nokkuð orðin stífluð.
Re: hátt rakastig

Posted:
Thu 02. Dec 2010 21:24
by Dóri-
iar wrote:Myndi bæta við að tékka hvort frjókornasían sé nokkuð orðin stífluð.
rétt
Re: hátt rakastig

Posted:
Thu 02. Dec 2010 22:57
by Geirinn
Re: hátt rakastig

Posted:
Thu 02. Dec 2010 23:06
by JonHrafn
Dóri- wrote:iar wrote:Myndi bæta við að tékka hvort frjókornasían sé nokkuð orðin stífluð.
rétt

Re: hátt rakastig

Posted:
Fri 03. Dec 2010 09:17
by sigridurma
þar sem bílskúrinn er fullur af drasli þá get ég ekki haft hann á upphituðum stað, ef ég man rétt þá var skipt um frjókornasíu í júlí... hún stíflast varla það fljótt, en ég ætla að skella dagblöðum á eftir og setja anti fog, ef þetta virkar ekki þá splæsi ég í rafmagnshitara
Re: hátt rakastig

Posted:
Fri 03. Dec 2010 09:43
by Jón Ragnar
Endar það ekki bara svona?

Re: hátt rakastig

Posted:
Fri 03. Dec 2010 10:47
by GunniT
sigridurma wrote:þar sem bílskúrinn er fullur af drasli þá get ég ekki haft hann á upphituðum stað, ef ég man rétt þá var skipt um frjókornasíu í júlí... hún stíflast varla það fljótt, en ég ætla að skella dagblöðum á eftir og setja anti fog, ef þetta virkar ekki þá splæsi ég í rafmagnshitara
Frjókornasían er í húddinu á þesum bíl og mjög auðvelt að komast að henni.. Hún er nánast alveg við framgluggan og eru tvær smellur til þess að skoða hana..
Re: hátt rakastig

Posted:
Sat 04. Dec 2010 14:38
by sigridurma
GunniT wrote:sigridurma wrote:þar sem bílskúrinn er fullur af drasli þá get ég ekki haft hann á upphituðum stað, ef ég man rétt þá var skipt um frjókornasíu í júlí... hún stíflast varla það fljótt, en ég ætla að skella dagblöðum á eftir og setja anti fog, ef þetta virkar ekki þá splæsi ég í rafmagnshitara
Frjókornasían er í húddinu á þesum bíl og mjög auðvelt að komast að henni.. Hún er nánast alveg við framgluggan og eru tvær smellur til þess að skoða hana..
það eru 3 smellur hjá mér ekki 2, en ég gáði að þessu áðan og hún var ekki stífluð. Annars hafa dagblöðin verið að gera sitt, þurfti að skipta út blöðunum sem ég setti í hilluna undir afturrúðunni í gær eftir að þau voru búin að vera í 6 tíma, ekkert frost í framrúðunni í morgun og bara smá eftir í afturrúðunni og hinum rúðunum

Re: hátt rakastig

Posted:
Sat 04. Dec 2010 18:26
by bErio
Þéttikantar á hurðum lélegir?
Re: hátt rakastig

Posted:
Sat 04. Dec 2010 20:10
by sigridurma
bErio wrote:Þéttikantar á hurðum lélegir?
bílstjórahurðin hjá mér var í rugli í mánuð eftir að það var bakkað á hana þannig að það var eitthvað þéttingarleysi og það kom alltaf lofthljóð þegar ég var að keyra, þegar það var mikið frost úti þá var frost inni í bílnum og þá kom raki en það er komin ný hurð núna og lofthljóðið er farið, og þetta er allt að fara núna þannig að efast um það