Kanski nenna menn ekki að skoða þráðinn í bílar meðlima þannig að ég pósta þessu hér.
Ég var að skipta um gírkassa í MINI og taldi mig vera búinn, fór út að keyra í morgun og þá hrökk öxullinn út úr gírkassahúsinu (bílstjóramegin)
Það er svona splitti á endanum á öxlinum (skorinn hringur) 5mm frá öxulendanum sem þarf að smella í hak, ég hef greinilega ekki náð að láta það smella.
Er eitthvað sérstakt trix við það? Ég hamaðist á þessu í gær en náði greinilega ekki að láta þetta smella. Prufaði að lúba þetta með grease, setja WD40 og berja létt á öxulinn en samt virðist þetta ekki hafa gripið....
HJÁááááÁlp !
