bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hitavandamál í M20B25 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=48319 |
Page 1 of 1 |
Author: | H1lmar [ Fri 26. Nov 2010 16:37 ] |
Post subject: | Hitavandamál í M20B25 |
Sælir, ég er með vandamál með m20 í e30 325ix. Bíllinn sleit viftureim um daginn, innri reimina sem keyrir áfram vatnsdæluna, bíllinn hitnaði eitthvað og var búinn að vera leiðinlegur með hitann síðustu mínúturnar áður en hann sleit reimina. Ég var ekki á bílnum sjálfur þannig að ég veit ekki hversu mikið hann hitnaði. Ég skipti um reimina og bíllinn var keyrður í nokkra daga eftirá og svo til í lagi með hann. Svo fór hann að hita sig og át/lak vatni svo ég þurfti að bæta á hann alveg heilum helling, líklega rúmlega 4 lítrum. Hann nær ekki að hita miðstöðina eins og hann er núna, og hitamælirinn er rokkandi frá normal og uppí tæplega rautt þegar stoppað er, en sígur svo stundum þegar keyrt er en stundum helst hann hátt. Hann hefur ekki farið alveg í botn svo ég viti til ennþá.. Ég hefði haldið að fyrst hann týndi vatninu þá væri heddpakkningin farin, en þar sem miðstöðin hitnar ekki og efri hosan frá vatnskassanum hitnar ekki en neðri hosan hitnar hvort þetta gæti verið vatnsdæla eða jafnvel vatnslás sem er að bögga mig. Ég finn ekkert í olíunni og finnst hann ekki vera að brenna vatni, lyktar ekki þannig. Lítið hægt að marka hvítan reyk í þessum kulda, allir bílar reykja þá. Hann týnir ekki vatni í eftir að bætt var á hann, ekki miklu amk, bíllinn var ekki keyrður mikið eftir það. Svo, áður en ég rýk til og versla eitthvað sem ég þarf ekki, er eitthvað sem ykkur dettur í hug, einhver einkenni sem ég get leitað eftir? |
Author: | GunniT [ Fri 26. Nov 2010 20:06 ] |
Post subject: | Re: Hitavandamál í M20B25 |
Búið að lofttæma?? |
Author: | Einarsss [ Fri 26. Nov 2010 21:11 ] |
Post subject: | Re: Hitavandamál í M20B25 |
hvaða 325ix er þetta? Ef þetta er touringinn sem ég átti þá er ný vatnsdæla og vatnslás í honum. Annars prófa lofttæma almennilega, tjekka hvort viftukúplingin sé léleg(hitar hann sig í lausagangi og kólnar á ferðinni?).. ef þetta er allt í góðu þá gæti ég trúað að heddpakkningin sé farin eða versta falli heddið sprungið ![]() |
Author: | Axel Jóhann [ Fri 26. Nov 2010 22:41 ] |
Post subject: | Re: Hitavandamál í M20B25 |
Pff, hver hefur ekki lent í svona fjöri, en ég myndi prófa að lofttæma, LENGI og oft. |
Author: | H1lmar [ Sat 27. Nov 2010 00:54 ] |
Post subject: | Re: Hitavandamál í M20B25 |
Einarsss wrote: hvaða 325ix er þetta? Ef þetta er touringinn sem ég átti þá er ný vatnsdæla og vatnslás í honum. Annars prófa lofttæma almennilega, tjekka hvort viftukúplingin sé léleg(hitar hann sig í lausagangi og kólnar á ferðinni?).. ef þetta er allt í góðu þá gæti ég trúað að heddpakkningin sé farin eða versta falli heddið sprungið ![]() Þetta er RO 130, á að vera ný dæla og lás, þess vegna finnst mér það ólíklegt að það sé strax farið og hef meiri áhyggjur af heddmálum. Held ég þurfi bara að byrja á að lofttæma betur. Einhver tips til að ná því 110%? |
Author: | Einarsss [ Sat 27. Nov 2010 10:44 ] |
Post subject: | Re: Hitavandamál í M20B25 |
H1lmar wrote: Einarsss wrote: hvaða 325ix er þetta? Ef þetta er touringinn sem ég átti þá er ný vatnsdæla og vatnslás í honum. Annars prófa lofttæma almennilega, tjekka hvort viftukúplingin sé léleg(hitar hann sig í lausagangi og kólnar á ferðinni?).. ef þetta er allt í góðu þá gæti ég trúað að heddpakkningin sé farin eða versta falli heddið sprungið ![]() Þetta er RO 130, á að vera ný dæla og lás, þess vegna finnst mér það ólíklegt að það sé strax farið og hef meiri áhyggjur af heddmálum. Held ég þurfi bara að byrja á að lofttæma betur. Einhver tips til að ná því 110%? gamli minn ![]() frekar einfalt.. best væri að leggja honum í brekku þannig að vélin halli upp, miðstöðin á heitu og láta bílinn ganga og opna fyrir lofttæmingarboltann á vatnsláshúsnu.. þegar það hættir að bubbla útum hann og rennur stöðugt þá lokaru fyrir.. ATH að fylgjast vel með að það sé nóg á forðabúrinu og að hitamælirinn fari ekki mikið upp fyrir miðju. Getur prófað að endurtaka þetta ef þetta lagast ekki, annars held ég að eitthvað annað sé farið. |
Author: | H1lmar [ Sat 27. Nov 2010 11:09 ] |
Post subject: | Re: Hitavandamál í M20B25 |
Tók hann og lofttæmdi hann betur í gærkvöldi og bíllinn er farinn að keyra. Hættur þessu veseni og verður að koma bara í ljós hvort hann sé eitthvað að éta vatn.. ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |