Page 1 of 1

Snitttappar M8

PostPosted: Wed 24. Nov 2010 01:00
by srr
Ég er í smá veseni með Motronic 1.3 breytinguna á ETA vélinni hjá mér.
Þar sem ég þarf að bolta Motronic skynjara bracketið á blokkina eru tvö göt, bæði M8 eins og boltarnir
sem voru í ix vélinni sem þeir koma af.
Vandamálið er að götin sem eru á ETA vélinni eru snittuð og allt,,,,en hafa aldrei verið notuð og því full af drullu etc.
Boltarnir virðast amk ekki ganga greiðlega inn nema örfáa snúninga, svo kemur mótstaða, annað hvort af drullu eða ryði,,,,
Er ekki best að skella snitttappa í götin og reyna hreinsa gengjurnar þannig?


Hvar er ódýrast að fá snitttappa? Mig vantar væntanlega vinduna líka.
Einnig, í svona tilfelli, þarf ég að snitta í þremur skrefum eins og venjulega?

Re: Snitttappar M8

PostPosted: Wed 24. Nov 2010 01:54
by ValliB

Re: Snitttappar M8

PostPosted: Wed 24. Nov 2010 22:10
by takecover
ég var með þetta vesen þegar ég var að svappa vél í e34 hjá mér. nokkur göt fyrir mótorarman voru full af drullu. ég notaði bara lítið skrúfjárn og plokkaði það sem ég gat út og svo setti ég svona bolta sem er með skarði á endanum og skrúfaði hann eins og ég gat, tók boltan svo út og plokkaði svo með skrúfjárninu aftur

svo bara endurtaka nokkrum sinnum og gengjunar bara fínar og góðar

Re: Snitttappar M8

PostPosted: Wed 24. Nov 2010 22:40
by Lindemann
það er alveg nóg fyrir þig að fara bara með 1 tappa í þetta, þar sem þú þarft bara að hreinsa úr gengjunum.

þarft nú ekkert nauðsynlega vindu fyrir svona smotteri, getur notað bara fastan lykil eða visegrip á endann á tappanum.

Re: Snitttappar M8

PostPosted: Thu 25. Nov 2010 15:27
by Jónas Helgi
[offtopic] Vá afhverju las ég fyrirsögnina "Smjattpattar m8" :drunk: [/ontopic]

*blank*

Re: Snitttappar M8

PostPosted: Thu 25. Nov 2010 17:17
by srr
Ég reddaði þessu með að versla mér snitttappasett í Byko á 6590 kr.
Það er vinda og 4 tappar, M4,M5,M6 og M8.

Þurfti reyndar svo að nota Wise á tappann þar sem vindan kemst ekki nógu vel að út af vatnsdæluhjólinu,,,,
En ein umferð inn og út með tappanum og þá var gengjan eins og ný :thup:

Re: Snitttappar M8

PostPosted: Thu 25. Nov 2010 19:49
by Axel Jóhann
GENGJURNAR SKÚLI, fleirtala!

Re: Snitttappar M8

PostPosted: Thu 25. Nov 2010 20:00
by srr
Axel Jóhann wrote:GENGJURNAR SKÚLI, fleirtala!

En ...... spliff donk og GENGJA :lol: