bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Spurningar um olílubrennslu á m52b25 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=48124 |
Page 1 of 1 |
Author: | Skúli [ Mon 15. Nov 2010 01:19 ] |
Post subject: | Spurningar um olílubrennslu á m52b25 |
Ég er að hugsa um að kaupa mér bíl af gerðinni e39 523i '96. Það eru líklegast farnar í honum ventlafóðringar því hann brennir olíu. Þá langar mig að spyrja: 1. Kann einhver hér inná að skipta um fóðringar án þess að taka headdið af, sem sagt blása í kertagötin til að losa ventlana? 2. Vitiði um heilt head af m52b25 til sölu eða slípisett til sölu? |
Author: | Skúli [ Mon 15. Nov 2010 17:26 ] |
Post subject: | Re: Hver getur kíkt á head fyrir mig af m52b25? |
Annað sem ég er spá í, það eru 2-3 kerti svört...undirstrikar það ekki að þetta séu ventlafóðringarnar eða getur hann verið að taka olíu meðfram stimplum á 2-3 cylindrum? Er það ekki oftast þannig að hann taki olíu meðfram öllum stimplum ef þetta skyldu vera stimpilhringir eða slitin blokk því það er jafnt slit á öllum cylindrum? Þið verðið að gefa mér svör, langar að vita hvað ég er að fara útí |
Author: | crashed [ Mon 15. Nov 2010 17:51 ] |
Post subject: | Re: Spurningar um olílubrennslu á m52b25 |
það geta verið ónítir stympilhryngir bara á stimpli 2 og 3 virðist ekki fara saman endilega, svo eru þeir eflaust ekki ónítir bara fastir en þeir skemmast oftast nær við að losa þá, svo myndi ég fara með heddið komplet bara í kystu fell og láta þá laga heddið, svo geturu tekkið stangarlegur og stimpilhryngi sjálfur og skyft um það |
Author: | Axel Jóhann [ Mon 15. Nov 2010 19:37 ] |
Post subject: | Re: Spurningar um olílubrennslu á m52b25 |
Mitt boð stendur, get líka skipt um legurnar fyrir þig fyrir eilítið hærri upphæð. |
Author: | SævarSig [ Tue 16. Nov 2010 22:01 ] |
Post subject: | Re: Spurningar um olílubrennslu á m52b25 |
Getur prófað að þjöppumæla hann, athugað hvernig þjappan er. Ef að hún er mikið mismunandi myndi ég skjóta frekar á hringi, getur einnig prófað að setja smá sjálfskiptiolíu ofan á stimplana (ofan í kertagötin) það getur oft verið nó að losa um hringina. Gott að leifa henni að liggja aðeins ofaní, startar honum svo duglega áður en þú skrúfar svo kertin í aftur. En ekki láta þér bregða þegar að hann fer í gang, kemur til með að reykja þvílíkt hvítu til að byrjameð. |
Author: | Skúli [ Mon 22. Nov 2010 09:32 ] |
Post subject: | Re: Spurningar um olílubrennslu á m52b25 |
Ég prófa þetta, takk fyrir þessi ráð. Annað sem ég var að pæla... þegar ég starta bílnum kemur reykmökkur aftan úr honum en hættir síðan. Getur það ekki verið vegna þess að það lekur olía í gegnum ventlaþéttingar og ofan á stimplana sem veldur þessu? |
Author: | GunniT [ Mon 22. Nov 2010 10:17 ] |
Post subject: | Re: Spurningar um olílubrennslu á m52b25 |
hann hættir ekki að mökka.. bara minkar aðeins |
Author: | Skúli [ Mon 22. Nov 2010 22:54 ] |
Post subject: | Re: Spurningar um olílubrennslu á m52b25 |
GunniT wrote: hann hættir ekki að mökka.. bara minkar aðeins Já hann hættir kannski ekki beint, en minnkar töluvert, bendir það á ventlaþéttingar eða? |
Author: | loffinn [ Wed 24. Nov 2010 21:00 ] |
Post subject: | Re: Spurningar um olílubrennslu á m52b25 |
Meðað við þessar lýsingar eru ventlaþettingarnar vel búnar og spurning um stimpilhringi, ef það er ál blokk í honum geta cylendrarnir líka verið slitnir en þjöppumæling ætti að segja eitthvað um það...(gengur þá oft ójafnan hægagang ) það er samt ekki beint fljótlegt að skipta um ventlaþéttingar og mæli ekki með að reynslulítill aðili geri það... |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |