Sælir, Þarf að skipta um pakkdós aftan á beinskiptingu á E46, smitar meðfram, var að pæla hvort þetta væri eitthvað mál, hvort ég gæti gert þetta sjálfur, eða mælið þið með því að ég láti gera þetta á verkstæði, þarf víst að taka pústið undan til að komast að því eða eitthvað svoleiðis...
Einnig er eitthvað bévað vesen með inngjöfina, lýsir sér þannig að DSC og EML ljósin kvikna stundum, oftast á góðri siglingu, en kemur líka fyrir á minni hraða, og inngjöfin verður hundleiðinleg, annaðhvort cuttar hann alveg á hana eða þá að hún verður fáránlega viðkvæm og helst ekki jöfn, kannski þið kannist eitthvað við þetta?
Með fyrirfram þökk, Kristján
|