Í dag komst ég afþví að báðir BMW-arnir á heimilinu fóru ekki í gang, 1 stk 318 e46 99/00 árg og 1 stk. 320D e46 03árg,, ástæðan voru ónýtir rafgeymar, þannig ég fór í það að leysa geymirinn úr 318bílnum og brunaði upp í N1, þar voru þeir með allar upplýsingar sem þurfti,, þ.e.a.s hvaða rafgeymir fer í hvaða bíl svo ég þurfti ekkert að koma með gamla geymin, en mér fannst áhugavert að þeir seldu mér báða geymana töluvert stærri,,
minnir að t.d. í 318,, var 55am geymir fyrir en samkvæmt þeirra upplýsingum þurfti ég 75am..
og í 320 var 60am og mér var seldur 80ampera geymir.
og merkilegast var að báðir geymarnir í bílunum voru merktir bmw, þ.e.a.s oem. geymar.
hver ætli skýringin sé á þessu ? hefur bmw gefið út tilkynningu eftir framleiðslu bílanna að þeir þurfi á betri geymum að halda eða einfalega hafa stærri geyma svo þeir endist lengur, mér er svosem allveg sama hvort ég fái svör.. bara fínt að fá að vita þetta

kv. einn forvitinn