Hm, þessir hringir eru ansi ódýrir. Ertu viss um að þetta sé ekki bara rusl eða gamalt? Ég myndi setjast aðeins niður og lesa smá um týpurnar sem eru til boða áður en þú kaupir, því að þó þú getir kannski sparað $100 á að kaupa eitthvað budget dæmi, þá fer sá hagnaður útum glugganum um leið ef þetta bilar eitthvað og þú þarft að annaðhvort fara í lagfæringar eða kaupa nýtt.
Annars fékk ég mér Weisslicht (
http://www.jlevistreetwerks.com) á einhverja $150 ef ég man rétt í facelift bílinn minn. Tollurinn svo auðvitað nauðgaði þessu svo upp í einhverja fleiri tíuþúsundkalla, og svo kveinkuðu þeir í TB yfir því hve mikið vesen var að láta svona í.
Get samt alveg mælt með Weisslicht. Kemur í mjög góðum umbúðum, virkar allt mjög sterklega byggt, og er þrusu flott
