Page 1 of 1

Xenon pera missir birtustig.

PostPosted: Tue 05. Oct 2010 23:54
by Sarot
Smá troubleshooting handa xenon fróðum mönnum. Ég s.s. tók eftir því í dag að ein xenon peran hjá mér er búin að missa smá birtustig eða "blámuna"...
Hún er eiginlega bara komin niður í að vera eins og venjuleg ökupera, ef þið skiljið hvað ég á við.

Er peran bara orðin eitthvað lúin eða gæti það mögulega verið eitthvað annað að?

Re: Xenon pera missir birtustig.

PostPosted: Wed 06. Oct 2010 09:13
by gardara
Er þetta alveg örugglega xenon pera? En ekki bara blá máluð venjuleg pera sem farin er að flagna.

Xenon er allavega gastegund sem ætti ekkert að vera að missa lit.

Re: Xenon pera missir birtustig.

PostPosted: Wed 06. Oct 2010 10:24
by Maggi B
þetta er merki um að hún sé dauð. hún lýsir líklega vitlaust líka núna

Re: Xenon pera missir birtustig.

PostPosted: Wed 06. Oct 2010 14:48
by Sarot
gardara wrote:Er þetta alveg örugglega xenon pera? En ekki bara blá máluð venjuleg pera sem farin er að flagna.

Xenon er allavega gastegund sem ætti ekkert að vera að missa lit.


Þetta er 100% xenon :)
Sambandi við að hún sé að lýsa vitlaust þá benti félagi minn einmitt á að hann hafi einmitt tekið eftir því að hæðin á lýsingu á perunum séu mismunandi.
Líklegast er ein peran þá farin.

Takk fyrir þetta 0/

Re: Xenon pera missir birtustig.

PostPosted: Thu 14. Oct 2010 22:02
by ppp
Sarot wrote:Sambandi við að hún sé að lýsa vitlaust þá benti félagi minn einmitt á að hann hafi einmitt tekið eftir því að hæðin á lýsingu á perunum séu mismunandi.
Líklegast er ein peran þá farin.


:hmm: Er ekki hæðin alltaf mismunandi? Þeas. vinstra framljósið lýsir alltaf lægra til að blinda ekki aðra ökumenn?

Image

Bara svona just in case að hann sé að tala um þetta.

Re: Xenon pera missir birtustig.

PostPosted: Fri 15. Oct 2010 18:28
by slapi
Það er ekki mismunandi hæð milli v og h ljóss. Það sem ræður þessu formi á geislanum er skurðurinn sem fæst með speglunum í ljósunum sem eru eins beggja megin

Re: Xenon pera missir birtustig.

PostPosted: Fri 15. Oct 2010 19:50
by ppp
slapi wrote:Það er ekki mismunandi hæð milli v og h ljóss. Það sem ræður þessu formi á geislanum er skurðurinn sem fæst með speglunum í ljósunum sem eru eins beggja megin

Ah já, rétt.

En samt sem áður fyrir fólk sem veit það ekki getur það virkað eins og linsan á hægra framljósinu lýsi hærra/lengra en það vinstra við fyrstu sýn, þannig að þetta gæti alveg verið það.

Re: Xenon pera missir birtustig.

PostPosted: Sun 17. Oct 2010 23:36
by reynirdavids
þú getur prufað að víxla spennunum milli ljósa og sjá hvort að spennirinn sem er með slöku peruna hagi sér eins hinu meginn. Getur verið að hann sé farinn og gefi þ.a.l. heldur minni spennu inná peruna.

En síðan getur þetta líka auðvitað verið peran.

Re: Xenon pera missir birtustig.

PostPosted: Tue 19. Oct 2010 01:27
by Sarot
Það fór loksins ein peran.

En þó ekki þeim megin sem mér fannst vera að missa birtuna. Heldur var það hin peran sem í rauninni var að lýsa skringilega síðasta daginn áður enn hún fór.
Hún s.s. varð óvenju blá ( í það minnsta mun blárri en hin sem var í lagi)

Nú er ég ekki nógu fróður um xenon en gæti þetta tengst einhverju öðru í kerfinu en bara peruna? :idea: :?: (spurningin er meira fyrir forvitnissakir, þar sem nýjar perur verða hvort eð keyptar)

Re: Xenon pera missir birtustig.

PostPosted: Tue 19. Oct 2010 13:44
by Maggi B
Þett hegðar sér hjá þér allveg eins og þetta gerir þegar pera failar.