bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hurð föst lokuð í E39.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=47316
Page 1 of 1

Author:  Danni [ Sat 02. Oct 2010 00:19 ]
Post subject:  Hurð föst lokuð í E39.

Sælir.

Lenti í því óheppilega atviki þegar ég var að sækja vin minn á rúntinn í kvöld að allt í einu vildi hurðin ekki lokast, svo hann fiktaði aðeins í handfanginu og lokaði en núna vill hurðin ekki opnast!

Það er alveg eins og að hún er í lás. Læsingarpinnin fer niður og upp aftur ef maður togar í handfangað að innan og fylgir samlæsingunum alveg, en hurðin opnast ekki, hvorki með handfanginu að innan né að utan.

Um er að ræða hægri hurðina að framan.

Eruð þið félagar með einhver ráð varðandi hvernig ég get leyst þetta vandamál? Er mögulegt að taka hurðaspjaldið af með hurðina lokaða eða er þetta eitthvað sem ég ætti að bara að láta sérfræðingana hjá Eðalbílum tækla?

Author:  Axel Jóhann [ Sat 02. Oct 2010 05:18 ]
Post subject:  Re: Hurð föst lokuð í E39.

Ég er með skothelda lausn á þessu.



Finndu þann stað utan á hurðinni þar sem hurðalæsingin er á bakvið og prófaðu að banka þéttingsfast með hnefanum eins og þú sért að berja í borð, prófaðu þetta nokkrum sinnum og ef þetta virkar ekki þá skal ég gefa þér 2 bjóra!


Svo þegar hurðin er opin þarftu að taka hurðalæsinguna úr og láta liggja í sjálfskiptivökva í smá tíma og skella henni svo aftur í. :)

Author:  Danni [ Sat 02. Oct 2010 09:13 ]
Post subject:  Re: Hurð föst lokuð í E39.

Prófa þetta. Annars er ég búinn að googla þetta aðeins og þetta virðist algengt á E38 og E39 og það hafa komið nokkrar lausnir til að opna sem virka "kannski", prófaði þær allar en engin þeirra virkaði :lol:

Síðan hefur það bara verið málið að taka hurðaspjaldið af með hurðina lokaða og komast í læsinguna og þvinga hana opna og skipta síðan um.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/