Sælir,
Er að reyna að laga lélegan gang í 318is. Bíllinn fékk líka athugasemd í seinustu skoðun vegna of mikillar mengunar (endurskoðun).
Bíllinn gengur mjög illa núna á lágum snúning. Gengur ekki hægagang. Er augljóslega mjög ríkur. Mun betri á hærri snúning.
Hann virðist vera misjafn í ganginum en aldrei fullkominn.
Bíllinn gefur villukóða 1222. Þetta er skv. Bentley Oxygen sensor lean/rich control stop.
Google segir þetta um hann meðal annars:
Quote:
1222 - Lambda control fault code is produced when Motronic system in Bosch control unit receives signal indicating that air/fuel mixture is either excessively rich or excessively lean for period of time loner then 10 seconds. Majority of the causes that affect drivability of the car can be responsible for DME flashing this error:
* air leak
* defective Air Flow Meter ( AFM)
* bad engine temperature sensor
* incorrect fuel pressure
* problem with injector(s)
* defective evaporation system
* empty gas tank
* issue with spark plugs
* problem with valves
* etc.
Búinn að prófa annan AFM það breytti engu. Hita skynjarinn er að fá straum í það minnsta.
Nóg bensín. Ekki að sjá neitt athugavert við kertaþræði. Engar augljósar rifur á hosum eða slíkt.
Ég kann eiginlega ekki að sjékka með restina. Hvernig er best að komast að því hvað er að nákvæmlega?
Einhverjir benda á að hreinsa ICV og skipta um súrefniskynjara (fyrir 1222) en aðrir segja að það hafi ekki virkað.
Óska eftir aðstoð frá snillingunum. Á ég að ganga í það að þrífa ICV (hann er undir manifoldinu sem þarf þá að fara af) eða á maður að prófa annað fyrst...
Þætti vænt um aðstoð. Þyrfti að koma honum í gagnið sem fyrst.