bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=46749
Page 1 of 1

Author:  JOGA [ Thu 02. Sep 2010 21:57 ]
Post subject:  E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

Sælir,

Er að reyna að laga lélegan gang í 318is. Bíllinn fékk líka athugasemd í seinustu skoðun vegna of mikillar mengunar (endurskoðun).
Bíllinn gengur mjög illa núna á lágum snúning. Gengur ekki hægagang. Er augljóslega mjög ríkur. Mun betri á hærri snúning.
Hann virðist vera misjafn í ganginum en aldrei fullkominn.

Bíllinn gefur villukóða 1222. Þetta er skv. Bentley Oxygen sensor lean/rich control stop.

Google segir þetta um hann meðal annars:
Quote:
1222 - Lambda control fault code is produced when Motronic system in Bosch control unit receives signal indicating that air/fuel mixture is either excessively rich or excessively lean for period of time loner then 10 seconds. Majority of the causes that affect drivability of the car can be responsible for DME flashing this error:

* air leak
* defective Air Flow Meter ( AFM)
* bad engine temperature sensor
* incorrect fuel pressure
* problem with injector(s)
* defective evaporation system
* empty gas tank
* issue with spark plugs
* problem with valves
* etc.


Búinn að prófa annan AFM það breytti engu. Hita skynjarinn er að fá straum í það minnsta.
Nóg bensín. Ekki að sjá neitt athugavert við kertaþræði. Engar augljósar rifur á hosum eða slíkt.

Ég kann eiginlega ekki að sjékka með restina. Hvernig er best að komast að því hvað er að nákvæmlega?
Einhverjir benda á að hreinsa ICV og skipta um súrefniskynjara (fyrir 1222) en aðrir segja að það hafi ekki virkað.

Óska eftir aðstoð frá snillingunum. Á ég að ganga í það að þrífa ICV (hann er undir manifoldinu sem þarf þá að fara af) eða á maður að prófa annað fyrst...

Þætti vænt um aðstoð. Þyrfti að koma honum í gagnið sem fyrst.

Author:  srr [ Thu 02. Sep 2010 21:59 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

Tengist þetta slæma bensíninu?

Búinn að skoða kerti?

Author:  gstuning [ Thu 02. Sep 2010 21:59 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

Þetta er næstum alltaf lambda sensor

Author:  JOGA [ Fri 03. Sep 2010 21:23 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

gstuning wrote:
Þetta er næstum alltaf lambda sensor


Ég prófaði að taka úr sambandi. Það breytti engu. Segir það þér eitthvað?
Hefði viljað prófa hann með volt mælinum en er ekki alveg viss hvernig það er gert.

Tími ekki að kaupa nýjan nema vera viss um að það sé málið.

Bíllinn gengur ekki lengur hægagang og er augljóslega mjög ríkur. Gekk samt ágætan hægagang þegar ég sótti hann fyrir ca. viku.

Author:  gstuning [ Fri 03. Sep 2010 21:37 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

bílar verða næstum aldrei ríkir , frekar lean.

mjög fátt sem gerir bíl ríkann, nema bilaður þrýstijafnari eða vacuum slangann að honum

Author:  JOGA [ Fri 03. Sep 2010 21:51 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

Er að lesa í Bentley. Þar stendur að o2 skynjarinn sé ekki notaður þegar vélin er kvöld og því sé hægt að útiloka vandamál með skynjarann þannig.

Bíllinn byrjar að ganga eins og trunta strax. Er reyndar mjög fljótur að hitna.
Get ég þá útilokað o2?

Author:  gstuning [ Fri 03. Sep 2010 22:15 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

taktu hann bara alveg úr sambandi þá veistu hvort hann gerir eitthvað.

ég skýt á vacuum leka.

Author:  JOGA [ Fri 03. Sep 2010 22:18 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

gstuning wrote:
taktu hann bara alveg úr sambandi þá veistu hvort hann gerir eitthvað.

ég skýt á vacuum leka.


Tók hann alveg úr sambandi áðan. Það breytti engu. Bíllinn gekk mjög svipað/eins þ.e. mjög illa
Þýðir það að hann sé í lagi eða ónýtur :lol:

Author:  JOGA [ Fri 03. Sep 2010 22:35 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

Fór og sjékkaði á úber vel á gúmmíinu frá MAF að inntaki. Ekki einu sinni sprunga á því.
Engin göt eða neitt sjáanlegt.

:argh:

Author:  gstuning [ Fri 03. Sep 2010 22:50 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

þarft að fara yfir ALLT.

ég sá eina M44 um daginn sem gékk eins og trunta því hosan fyrir idle control ventilinn hafði dottið af

Author:  jens [ Fri 03. Sep 2010 23:01 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

Myndi líka veðja á slöngu sem hefur losnað lent sjálfur í því á minni M42, alveg fáránlegt hvað ég var búin að fara oft yfir allt áður en ég aulaðist til að sjá þetta.

Author:  JOGA [ Sat 04. Sep 2010 17:18 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

Jæja, hreinsaði ICV ventil og það virðist hafa lagað hann.
Hann í það minnsta gengur fínt núna.

Vonandi að þetta hafi verið málið varðandi CO2 í skoðuninni seinast.

Author:  srr [ Sat 04. Sep 2010 17:27 ]
Post subject:  Re: E36 318is of ríkur og gengur illa - Villukóði 1222

JOGA wrote:
Jæja, hreinsaði ICV ventil og það virðist hafa lagað hann.
Hann í það minnsta gengur fínt núna.

Vonandi að þetta hafi verið málið varðandi CO2 í skoðuninni seinast.

Gott mál :thup:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/