Það fer nátturulega algjörlega eftir hvað þú ætlar að nota þetta í.
DIS , SSS og Ediabas( Inpa ) þarftu ekki að kaupa , þetta er til algjörlega allsstaðar á netinu.
DIS er mikið diagnostic software sem BMW dealerar notuðu frá 95/96 þanga til í fyrra þegar nýtt kerfi ISTA/D kemur
Gæti orðið pínu flókið fyrir menn sem eru að stíga fyrstu skrefin í þessu , en bíður uppá mikla möguleika diagnosticlega séð.
SSS er program forrit sem var samhliða DIS sem varð einnig úrelt í fyrra og við tók ISTA/P , í því er hægt að breyta CKM , uppfæra stjórnbox oþh.
DIS/SSS hinsvegar vinnur best með GT1 haus (notaður uppað E39/E46)
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/BMW-GT1- ... 3189wt_914Eða
OPS/OPPS sem kemur með MOST væðingunni (E65 og seinna)
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/NEW-BMW- ... 721wt_1158En ég hef þó séð að menn hafa búið til tengingar úr USB-OBD til að vinna með DIS/SSS.
Ediabas(inpa) er meira pro BMW software sem var samhliða DIS/SSS sem bíður uppá mestu möguleikana en ég mæli ekki með að menn noti þetta forrit nema þeir hafi góða reynslu af tölvuvinnslu í kringum BMW.
Carsoft er ágætt , jafnvel fullkomið fyrir bílskúrsgrúskarann sem vill hafa möguleikann á getað lesið af heima í skúr.
Mín reynsla er hinsvegar af þessu systemi að þetta er oft ónákvæmt og frekar takmarkað í vinnslu , bilanakóðar eru stundum vitlausir oþh.
Getur bara PM-að ef þú vilt frekari upplýsingar.