Rugl í gangi með vatnskassa.
Okei þannig er mál með vexti að vatnskassinn minn byrjaði að leka og ofhitna um daginn, okei allt í lagi með það, svo í dag fer ég og sæki hann, fylli á hann vatni og ætla að keyra heim og auðvitað ofhitnar hann. Þá hafði mér verið bent á að keyra hann bara með ekkert lok á forðabúrinu, og allt í lagi ég geri það OG VITI MENN bíllinn lak ekki einum einasta dropa alla þessa 60 km, mosfellsbær-selfoss og hitar sig bara venjulega.
Þegar ég kem síðan heim, er ekki einn einasti dropi undir bílnum og allt virðist vera í fínasta standi, allavega sá ég engar slitnar slöngur eða eitthvað annað sem gæti verið að þegar ég kíkti á vatnskassan í fljótu bragði.
Svo núna langar mig að spyrja hvort einhver hérna á kraftinum hafi lent í sama veseni og geti sagt mér eitthvað til um þetta en mín tilgáta er sú að þetta sé einhver þrýstingsleki sem myndast.
Með von um góð svör.