bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Rafmagnsvesen í E30.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=46001
Page 1 of 1

Author:  JonFreyr [ Wed 21. Jul 2010 19:20 ]
Post subject:  Rafmagnsvesen í E30.

Þannig er mál með vexti að ég er stundum mjög þreyttur eftir fyrstu næturvaktina í nýrri törn. Þá kemur það fyrir að ég gleymi að slökkva ljósin á kagganum og það gerðist einmitt þegar ég kem heim þriðjudagsmorgun. Ég fæ start af nánast nýjum bíl og kaplarnir glóðhitna og nýji bíllinn getur ekki startað og ég fæ minn ekki til að starta, við hættum við og ákveðum að skemma ekki nýja fína apparatið. Svo kom vinnufélagi minn á gamalli Mözdu og reddaði mér starti, allt gekk eins og í sögu og bíllinn rýkur í gang með tilheyrandi ventlaglamri :)

Vandamálið er að það er enginn snúningshraði, engin klukka, engin ljós í innréttingu og núna koma skilaboð um Motorolíu á Check Panel. Ég er nýbúinn að bæta á olíu og það vantar ekki olíu.

Er rétt að áætla að ég hafi slátrað ótal litlum öryggjum við fyrsta startið ? Þetta böggar mig ekkert því ég nota bílinn alveg minimal en bara klaufalegt og pínu neyðarlegt því að það eru engin geimvísindi að fá start.

Author:  Einarsss [ Wed 21. Jul 2010 20:43 ]
Post subject:  Re: Rafmagnsvesen í E30.

hljómar eins og kapút öryggi fyrir mér, spurning hvort að kaplarnir hafa snerst eitthvað þegar það var verið að taka þá af hinum bílnum?

Author:  JonFreyr [ Wed 21. Jul 2010 21:13 ]
Post subject:  Re: Rafmagnsvesen í E30.

Engin snerting :) var farid mjög fagmannlega ad thessu. En thad var mikil Ampera-lykt í loftinu og engin furda ef einhver öryggi hafa gefid upp öndina, thad er jú alltaf smá shock thegar madur setur sídustu klemmuna á sinn stad.

Author:  ömmudriver [ Sun 25. Jul 2010 04:04 ]
Post subject:  Re: Rafmagnsvesen í E30.

JonFreyr wrote:
Engin snerting :) var farid mjög fagmannlega ad thessu. En thad var mikil Ampera-lykt í loftinu og engin furda ef einhver öryggi hafa gefid upp öndina, thad er jú alltaf smá shock thegar madur setur sídustu klemmuna á sinn stad.



Er þessi "nýji" bíll sem gaf start í fyrra skiptið ekki örugglega með tólf volta rafkerfi?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/