bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vantar hjálp með hátalara og síma!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=45663
Page 1 of 1

Author:  Aronpals [ Mon 05. Jul 2010 19:56 ]
Post subject:  Vantar hjálp með hátalara og síma!

Sælir,

Nú væri ekki slæmt að fá smá hjálp frá ykkur sérfræðingunum.
Bíll: BMW E39 M5
Ég er í vandræðum með hljóð í bílnum hjá mér, það heyrist ekkert í hátölurunum, en útvarpið finnur samt stöðvarnar og því ætti það ekki að vera ónýtt.
Það er búið að aftengja síman og snúrurnar liggja eftir, ég er búinn að prófa tengja síman aftur en fæ hann ekki til að virka. Ég skipti um öryggi þar líka.
Ég tók útvarpið úr bílnum í skottinu og skipti um öryggi, en ég finn ekki öryggi í magnaranum.

Mér var sagt að þetta gæti verið öryggi í magnara, eða þá að snúrurnar úr símanum liggi saman og því sé síminn að stilla á mute sjálfkrafa.

Eru einhverjar fleiri hugmyndir um hvað gæti verið að ? er einhver stilling í sjálfri tölvunni, er með litla sjónvarpið..

Í von um skjót svör þar sem það er hundleiðinlegt að heyra ekkert.

Author:  Alpina [ Mon 05. Jul 2010 20:08 ]
Post subject:  Re: Vantar hjálp með hátalara og síma!

Ég myndi tala við Tómas í www.edalbilar.is

MEGA útvarps og rafmagns-séni :thup:

Author:  Aronpals [ Tue 06. Jul 2010 21:57 ]
Post subject:  Re: Vantar hjálp með hátalara og síma!

Já ég prófa það á morgun, er annars engum sem dettur neitt í hug núna?

Author:  bimmer [ Tue 06. Jul 2010 22:19 ]
Post subject:  Re: Vantar hjálp með hátalara og síma!

Aronpals wrote:
Já ég prófa það á morgun, er annars engum sem dettur neitt í hug núna?


Prufaðu að pósta á m5board.com.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/