Page 1 of 2
Inspection á mælaborðinu

Posted:
Mon 16. Feb 2004 13:49
by BMW_Owner
hvað þýðir þetta inspection þetta kemur bara þegar maður setur í gang og svo bara búið þetta virðist eins og þetta eigi eitthvað að gera eða tékka en það er bara "Inspection svo einn gulur reitur og einn rauður" hvað gerir þetta á þetta að gera og er hann að láta vita að eitthvað sé komið á tíma,sé að hrynja eða bilað?
kv.BMW_Owner
p.s Just asking....þetta truflar ekkert bílinn (ekki svo ég viti) en alltaf gott að hafa allan varann á


Posted:
Mon 16. Feb 2004 13:59
by bebecar
Þetta þýðir að það er kominn tími á skoðun hjá þar til bærum aðila, t.d. B&L eða Tækniþjónustu Bifreiða.

Posted:
Mon 16. Feb 2004 14:14
by BMW_Owner
bara árlega skoðun eða af því honum finnst eitthvað vera að?
kv.BMW_Owner


Posted:
Mon 16. Feb 2004 14:23
by arnib
Honum finnst bara vera kominn tími á að kíkja á sig.
Langar í nýja olíu og síur kannski og svona..
smá klapp á mallann

Posted:
Mon 16. Feb 2004 14:39
by BMW_Owner
það var nú sett þessi fína olía á hann í gær en mælaborðið breyttist lítillega þó að gangurinn hafi verið allt annar en eru þeir í b&l ekki með eitthverja tölvu sem endurstillir þetta?? annars datt mér þetta bara í hug þegar ég var að skoða service manualið og þá sá ég að þetta ætti að keyra svona eftir mælaboðinu og koma eitthvað oilinspection og inspection og lalala eitthvað þannig og þetta gerði það ekki neitt....
kv.BMW_Owner


Posted:
Mon 16. Feb 2004 14:45
by Haffi
verður að láta endurstilla þetta í tölvu

Posted:
Mon 16. Feb 2004 15:46
by Jökull
það er hægt að fara inná
www.bmwe30.net stimla inn m40 í search fara neðst á listann, og þá kemur hvernig á að gera þetta skiptir held ég eingu hvaða bmw þú ert á eina sem maður þarf er einn stuttur vír

ég gerði þetta í gær og það svínvirkaði.

Posted:
Mon 16. Feb 2004 16:18
by Haffi
Settiru vír á milli 7 og 13 ??
þetta er ágætis ráð til að losna við ljósið, en um leið STEIKIRU Tölvuna í bílnum!!

Posted:
Mon 16. Feb 2004 16:47
by gstuning
Haffi nei það er ekki alveg satt
Þetta gerir maður reglulega bara og þá haldast ljósin fjarri,
hver þarf bílinn til að segja sér að maður þarf að smyrja hann??

Posted:
Mon 16. Feb 2004 16:48
by Haffi
ég las einhverstaðar að ef að maður gerir þetta oft þá steikist tölvan, og gaurinn sem átti 520 bílinn á undan mér hafði steikt tölvuna í honum með svona fúski


Posted:
Mon 16. Feb 2004 16:52
by gstuning
Það á að vera öryggi á vírnum líka, og það er bannað að fúska, gera þetta bara rétt,
og vandlega

Posted:
Mon 16. Feb 2004 17:03
by Haffi
ætli það sé ekki ástæðan fyrir því að allt fór í steik
Hann lét ekki öryggið á oddinn


Posted:
Mon 16. Feb 2004 18:01
by Jökull
Ég setti bara vírinn á milli, svissaði á bílinn, resettaði, og tók vírinn úr

maður verður bara að hitta á réttu tenglana.

Posted:
Mon 16. Feb 2004 18:55
by BMW_Owner
er ekki bara betra að fara með bílinn niðrí B&L og láta þá redda þessu en ég nenni ekki að standa í því að þeir sjá eitthvað dót sem er hrunið og kosti 100þús að láta gera við það og ég fái ekki bílinn fyrr en það er búið að gera við það....en annars kostar það eitthvað milljón að láta þá restarta þessari tölvu (það virðist vera fyrst að fólk vill frekar steikja tölvuna en að fara með bílinn niðrí B&L)
kv.BMW_Owner


Posted:
Mon 16. Feb 2004 19:44
by BMW3
þú getur farið í bogl og látið slökkva á þessum ljósum þá setja þeir einhversskonar tæki í tölvuna á bílnum og þetta tekur sirka 2 mínotur og kostar ekki neitt gula og rauða ljósið er bara fyrir hefðbundna skoðun um leið og þeir eru búnir að skoða bílinn þá setja þeir þetta stykki í og ljósin fara skoðunin kostar um 25.000 kall hjá bogl þessi ljós eru ekki fyrir neina bilun eða slíkt