Page 1 of 2

E36 framljós - Gler

PostPosted: Sun 27. Jun 2010 22:46
by gunnar
Ég veit að menn hafa eitthvað verið að massa framljósin á E36 þegar þau eru orðin mött og rispuð.

Hvaða efni og hvaða aðferð hentar er það sem mig vantar að vita.

Orðin voðalega döpur ljósin hjá mér.

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Sun 27. Jun 2010 23:13
by Alpina
gunnar wrote:Ég veit að menn hafa eitthvað verið að massa framljósin á E36 þegar þau eru orðin mött og rispuð.

Hvaða efni og hvaða aðferð hentar er það sem mig vantar að vita.

Orðin voðalega döpur ljósin hjá mér.


Massi eins og slípimassi á bíl

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 00:49
by BirkirB
Ég reyndi þetta einu sinni á glerljós. Notaði mjög fínann vatnssandpappír og þetta var ekki að virka...
Held að þetta virki bara á plastljós eins og eru á e39 (pre-facelift held ég). Allavega sá ég diy þar sem einhver var að massa plastljós af e39.

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 05:40
by Danni
Það var einn sem sagði mér einusinni að það væri best að gluða glæru á ljósin og þá yrðu þau eins og ný...

En ég man ekki hver það var og hef ekki séð það gert svo ég ætla ekki að fullyrða að það virki...

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 15:17
by gunnar
Hlýtur nú að vera hægt að tjasla þessu eitthvað til.

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 17:38
by IceDev

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 17:45
by Einarsss
ætli svona kitt fáist hérna heima?

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 17:48
by IceDev
Þetta er nú bara sandpappír og massi. Ert meira að segja með gritfjöldann á hreinu

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 17:50
by Einarsss
IceDev wrote:Þetta er nú bara sandpappír og massi. Ert meira að segja með gritfjöldann á hreinu



veit það.. en vantar svona haus á borvél, bara þægilegra að kaupa þetta allt saman :D

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 17:52
by IceDev
Ætli málningavörur séu ekki með þetta til hjá sér?

http://www.malningarvorur.is/pages/voru ... lipivorur/

eða þá Poulsen..

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 18:08
by BirkirB
Eins og ég sagði þá held ég að þetta virki bara á plastlinsur...
Þessi diy inniheldur plastlinsur...usa e36 komu með plastljósum...allavega flestir...

Segir sig eiginlega sjálft að maður slípar ekki gler þannig að það verði alveg slétt með sandpappír, sama hversu fínn hann er...

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 18:55
by IceDev
Bah, svona gerist þegar að maður les topicið ekki nógu vel

Þá er maður kominn yfir í glerskipti eða bara depo deildina :(

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 18:59
by Danni
BirkirB wrote:Eins og ég sagði þá held ég að þetta virki bara á plastlinsur...
Þessi diy inniheldur plastlinsur...usa e36 komu með plastljósum...allavega flestir...

Segir sig eiginlega sjálft að maður slípar ekki gler þannig að það verði alveg slétt með sandpappír, sama hversu fínn hann er...


Ertu alveg viss um það?? Ég hef aldrei séð plastcover á E36...

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Mon 28. Jun 2010 21:15
by BirkirB
Danni wrote:
BirkirB wrote:Eins og ég sagði þá held ég að þetta virki bara á plastlinsur...
Þessi diy inniheldur plastlinsur...usa e36 komu með plastljósum...allavega flestir...

Segir sig eiginlega sjálft að maður slípar ekki gler þannig að það verði alveg slétt með sandpappír, sama hversu fínn hann er...


Ertu alveg viss um það?? Ég hef aldrei séð plastcover á E36...


Það stendur t.d. í diy þræðinum.
Ég er 99% viss um að usa e36 komu með plastljósum en euro með gleri, allavega m3.

Re: E36 framljós - Gler

PostPosted: Tue 29. Jun 2010 09:00
by gardara
BirkirB wrote:
Danni wrote:
BirkirB wrote:Eins og ég sagði þá held ég að þetta virki bara á plastlinsur...
Þessi diy inniheldur plastlinsur...usa e36 komu með plastljósum...allavega flestir...

Segir sig eiginlega sjálft að maður slípar ekki gler þannig að það verði alveg slétt með sandpappír, sama hversu fínn hann er...


Ertu alveg viss um það?? Ég hef aldrei séð plastcover á E36...


Það stendur t.d. í diy þræðinum.
Ég er 99% viss um að usa e36 komu með plastljósum en euro með gleri, allavega m3.


Jebb þetta er það sem ég hef heyrt líka

usa e36 með plast
eur e36 með gler

Og svo hefur verið vinsælt hjá usa gæjunum að fá sér eur ljós