bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
punktadæld https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=45492 |
Page 1 of 2 |
Author: | Bjarni Þór [ Thu 24. Jun 2010 12:15 ] |
Post subject: | punktadæld |
Sælir, er með leiðinlega "punktadæld" sem ég vil endilega losna við, hvernig er best að gera við slíkar dældir? læt fylgja með frekar óskýra mynd, en ef menn skoða hvernig sólarljósið speglast á bílhliðinni sjá menn hvað um er að ræða. ![]() |
Author: | lacoste [ Thu 24. Jun 2010 12:18 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
Smáréttingar (Það er fyrirtæki) Þeir redda þessu með einhverri svaka segulbyssu. Gúglaðu þá. |
Author: | Bjarni Þór [ Thu 24. Jun 2010 12:18 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
takk takk ![]() |
Author: | Danni [ Thu 24. Jun 2010 15:26 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
Og endilega láttu vita hvernig fór ef þú fórst með þetta til Smáréttinga. Hvað kostaði og hvernig gekk og allt það. Ég er með fullt af svona punktadældum á 540 og þar af 2 á þakinu sem eru að gera mig alveg snælduvitlausan! |
Author: | jens [ Thu 24. Jun 2010 15:56 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
http://smarettingar.is/ |
Author: | Axel Jóhann [ Thu 24. Jun 2010 16:33 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
ég fór þangað áðan og þetta virtist nú ekki vera neitt professional verkstæði. |
Author: | Bjarni Þór [ Thu 24. Jun 2010 17:24 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
ég var einmitt þarna áðan og fékk verð í þetta, ég hélt ég væri með 4 dældir en hann grandskoðaði bílinn, 7 dældir, ég sá það svo sem þegar hann benti á þær, en hann bauð mér 45 þúsund í pakkann. næsta spurning er bara að fá að vita með vinnubrögðin hjá honum og hvort þetta virki, ég þekki ekkert til um það, er einhver hérna sem hefur látið gera þetta hjá sér? |
Author: | crashed [ Thu 24. Jun 2010 18:24 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
þeri eru búnir að vera í þessu í þónokuð langan tíma og eru bara helvíti góðir og sangjarnir á verðinu |
Author: | Bjarni Þór [ Thu 24. Jun 2010 18:33 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
gott mál, þetta er á to-do listanum á næstunni, ég læt vita hvernig útkoman verður. |
Author: | Stefan325i [ Thu 24. Jun 2010 19:09 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
Gaur að hnoðast á 7 smábeyglum á bílnum þínum hljómar frekar illa. |
Author: | Bjarni Þór [ Thu 24. Jun 2010 19:37 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
hahaha when you put it like that..... en annars, þekkiru eitthvað til vinnubragðanna hjá honum? |
Author: | Axel Jóhann [ Thu 24. Jun 2010 19:40 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
mér fannst þetta verkstæði ekki líta sannfærandi út ![]() |
Author: | jens [ Thu 24. Jun 2010 21:35 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
Hef ekki sjálfur séð til þeirra en vinnufélagi minn var með nýjan bíl og þeir löguðu 2 beyglur 100%, fer áræðanlega eftir því hvar og hvernig beyglan er. |
Author: | JOGA [ Thu 24. Jun 2010 22:11 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
Hef ekki reynslu af þeim né þekki til þeirra. En þetta er nokkuð þekkt erlendis. Hef líka séð viðgerð eftir svona hér heima fyrir mörgum árum. Veit ekki hvort um sama aðila er að ræða. Það sem ég hef séð kemur ótrúlega vel út. Fer eftir beyglum eins og bent hefur verið á samt. Þeir nota í þetta einhver "spes" verkfæri og það var í það minnsta þjálfaður aðili í þessu hérna heima einu sinni. Þ.e. lærði þetta sérstaklega úti. Þetta er að mörgu leiti sniðugt, sleppur við sprautun með tilheyrandi kostnaði og tíma sem það tekur. Einnig ágætt að losna við áhættuna á lita- og eða áferðarmun þó að auðvitað sé það ekki algilt. En held að aðal málið sé að þetta er misjafnt eftir staðsetningum og umfangi dældarinnar. Ef þetta er nálægt broti í boddýinu þá er þetta víst oft erfitt. Einnig skiptir víst máli hvernig aðkoman er að þessu. Hvort auðvelt sé að komast aftur fyrir dældina. Held að það sé í raun ekkert til fyrirstöðu að prófa þetta ef verðin eru í lagi. Vera svo bara gagnrýnin á vinnuna þegar þú tekur við bílnum. Ef þú ert ekki sáttur þá benda á það strax ef mögulegt. |
Author: | slapi [ Fri 25. Jun 2010 20:09 ] |
Post subject: | Re: punktadæld |
Það er eiginlega ótrúlegt hvað þeir geta gert hjá Smáréttingum. Hinsvegar ef á að eiga við eitthvað sem er úr áli eða dæld sem er mjög nálægt eða á buðarvirki í hurðum og annað getur þetta verið erfitt. En þetta verið ALLTAF betra. Hef séð töluvert af handbragðinu hjá þeim og mæli 100% með þeim. Ódýrir finnst mér meðaðvið hvað er verið að gera ++++ hækkar söluverð á bílum. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |