Sælir,
Ég er með '99 e39 540i með þessu sjónvarpi:

Ég ætla að gera tilraunir við að tengja eitthvað í AV rásina á tækinu, hvort sem það verður playstation, dvd eða eitthvað annað. Ég er með sjónvarp, eins og sést á myndinni, en ég er ekki með GPS navigation spilarann. Hinsvegar er gps-tölvan til staðar í skottinu (er ég nokkuð viss um..).
Ég er búinn að vera að gúggla á fullu og fann nokkrar leiðir sem mér líst ágætlega á en vantar álit sérfræðinganna.
1. Valkostur -
http://www.toysinyourcar.com/acatalog/bmw_av.html-Virðist vera plug n' play ?
-Hvar tengi ég þetta ?
2. Valkostur -
http://www.tvfree-modules.com/products- ... x5-z4.html-Neðst á síðunni "AV-adaptor"
-Ekki alveg plug n' play en virðist ekki flókið.
-Hvert tengi ég þetta ?
Hvað segið þið, hvort er betra og getur einhver sagt mér hvert ég myndi tengja þetta ? Ef einhver getur komið með einhverjar leiðbeiningar þá væri það líka alveg magnað!
ps. Ég er líka að spá í TV-free dæminu til að geta notað skjáinn á ferð. Hefur einhver reynslu af svoleiðis ?