bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Checklisti fyrir smurningu
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=45202
Page 1 of 1

Author:  gunnar [ Tue 08. Jun 2010 15:58 ]
Post subject:  Checklisti fyrir smurningu

Datt í hug hvort menn væru búnir að koma sér upp eitthvers konar checklista þegar þeir smyrja bílana hjá sér.

Núna er basicið auðvitað skipta um olíu, olíusíu og lofsíu etc..

En það sem væri einnig áhugavert er að sjá hvað menn eru að gera í reglubundnu viðhaldi þegar þeir smyrja bílana sína og hvernig þeir gera það (hvaða efni þeir nota ofl)

Það sem mér dettur í hug er:

- Smyrja í hurðastoppara (sem gengur inn í hurð) Hvaða efni menn nota
- Strjúka af rúðuþurrkublöðum með hreinsiefni
- Smyrja í koppa

Og fleira..

Væri áhuga vert að útbúa lista sem menn geta nýtt sér þegar þeir eru að sinna reglubundnu viðhaldi.. Eða hvað finnst ykkur

Author:  JOGA [ Tue 08. Jun 2010 16:30 ]
Post subject:  Re: Checklisti fyrir smurningu

Ég er reyndar ekki með neinn lista við smurningu sérstaklega en ég smyr t.d. reglulega hurðastoppara og nota þá hvíta feiti frá Wurth. Lang best í þetta. Þornar ekki og dugar mjög lengi.

Author:  Dóri- [ Tue 08. Jun 2010 16:37 ]
Post subject:  Re: Checklisti fyrir smurningu

fínt að kanna líka hvort að gírkassi eða drif leka.

Author:  gunnar [ Tue 08. Jun 2010 17:03 ]
Post subject:  Re: Checklisti fyrir smurningu

Væri flott ef menn (td eins og JOGA gerði) pósta inn hvað þeir gera og hvaða efni þeir nota til þess.

Fyrir mitt leyti myndi ég alveg vilja koma mér upp ágætis "efna-lager" sem ég get notað á alla bílana á heimilinu þegar maður er að smyrja þá. Þeir eru nú ekki nema 10 og við tveir feðgarnir :lol:

Author:  skulzen [ Tue 08. Jun 2010 22:41 ]
Post subject:  Re: Checklisti fyrir smurningu

allavega i vinnuni hjá mér er svo kallaður service þjónustan

oliuskipti á mótor
oliusía á mótor
oliuskipti á gírkassa
bensinsía
polyfilter (miðstöðvar sía eða frjókornasía)
kerti (ótengt þessu tilefni)
og smurt með gott feiti i alla spyrnukúlur og þvi helstu

kv

Author:  lacoste [ Wed 09. Jun 2010 02:33 ]
Post subject:  Re: Checklisti fyrir smurningu

Ég þríf reglulega þurrkurnar með bara alkahól based hreinsi, blöndungshreinsi eða álíka. Sílikon feiti á hurðastopparana.

Svo eru það basic hlutirnir.

-Olía á mótor, 0-40 á flest allt nema mikið keyrða bíla.
-Engine flush frá Kemi, 2-3 á ári.
-Tjékka á gír og drifi.
-Loftsía fyrir og eftir sumarið.
-Frjókornasía á árs fresti.

Mér hefur líka fundist það ágætt að nota bara skítódýra 10-40 olíu á mótor og skipta þá bara á 4000km fresti sirka, halda þessu fersku.

Author:  Alpina [ Wed 09. Jun 2010 06:47 ]
Post subject:  Re: Checklisti fyrir smurningu

lacoste wrote:

Eitt neikvætt við að nota td olíu eins og COMMA ((hún uppfyllir flest alla smurstaðla)) en inniheldur ekki þessa hreinsieiginleika eins og flestar dýrari oliur gera ,,

hef reynslu af þessu

Author:  lacoste [ Wed 09. Jun 2010 20:35 ]
Post subject:  Re: Checklisti fyrir smurningu

Alpina wrote:
lacoste wrote:
Ég þríf reglulega þurrkurnar með bara alkahól based hreinsi, blöndungshreinsi eða álíka. Sílikon feiti á hurðastopparana.

Svo eru það basic hlutirnir.

-Olía á mótor, 0-40 á flest allt nema mikið keyrða bíla.
-Engine flush frá Kemi, 2-3 á ári.
-Tjékka á gír og drifi.
-Loftsía fyrir og eftir sumarið.
-Frjókornasía á árs fresti.

Mér hefur líka fundist það ágætt að nota bara skítódýra 10-40 olíu á mótor og skipta þá bara á 4000km fresti sirka, halda þessu fersku.

Eitt neikvætt við að nota td olíu eins og COMMA ((hún uppfyllir flest alla smurstaðla)) en inniheldur ekki þessa hreinsieiginleika eins og flestar dýrari oliur gera ,,

hef reynslu af þessu

Já það er eflaust satt og rétt.
En þessvegna nota ég flushið :santa:

En annars þá var þetta aðferð sem ég notaði aðalega á winterbeaterana, corollur og svona dót. Myndi aldrei láta þetta snerta bmwinn eða Audinn.

En eitt enn, vitiði hversu gáfulegt það er að nota svona engine flush á bmw mótora keyrða 150-200þus km? Hef heyrt misjafnar sögur og margir vilja meina að þetta taki allt "carbon deposits" úr vélinni og þar með verði hún óþéttari. Eitthvað til í þessu?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/