Page 1 of 2
e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Wed 02. Jun 2010 02:28
by Seli
Sælir limir,
Ég er semsagt búinn að swappa m20b25 í m10b18 e30 og hann fær neista, loft og bensín en vill samt ekki fara í gang.
Bensíndælan vildi ekki fara í gang þegar ég svissaði á þannig að ég tengdi framhjá henni og hún virkar fínt núna. Ég veit ekki afhverju en mótorinn vill ekki detta í gang. Hann snýst og allt það eina sem vantar er að hann hrökkvi af stað. Mín kenning er að eitthvað relay sem stýri bensíndælunni og fari inn á vélartölvuna þegar ég svissa á sé ónýtt og valdi því að tölvan fái ekki rafmagn, er eitthvað vit í því?
Allar tillögur vel þegnar
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Wed 02. Jun 2010 03:02
by GriZZliE
Best að byrja bara á þessu basic er að koma neisti og er að koma bensín, Og vera viss um að bensínslöngurnar séu rétt tengdar í fuel railið, En relayið fyrir bensín dæluna er að mig minnir fyrir framan vinstri demparaturn ekki langt frá loftsíboxinu..
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Wed 02. Jun 2010 04:24
by Seli
hann er að fá neista, bensín loft og bensínslöngurnar eru á réttum stað, en er relayið fyrir bensíndæluna hluti af vélarloominu, sem sagt eitt af þessum þrem sem eru í mótorloominu sjálfu?
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Wed 02. Jun 2010 06:52
by GriZZliE
Já það er eitt af þeim.. Man nú reyndar ekki alveg hvert þeirra það var, eru kominn nokkur á síðan ég var að standa í m20 swappinu mínu..
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Wed 02. Jun 2010 08:13
by Einarsss
Ertu með kertaþræðina á réttum að á kveikjunni?
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Wed 02. Jun 2010 11:46
by Seli
er ekki alveg klár á því, ég hef ekkert átt við kertaþræðina eða kveikjuna því að þetta átti allt að vera rétt þegar ég keypti mótorinn.
Hvar er annars réttur staður fyrir þræðina á kveikjunni?
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Wed 02. Jun 2010 12:09
by Einarsss
yfirleitt eru þræðirnir númeraðir á kápunni og svo er númer á kveikjulokinu fyrir neðan hvert plögg sem segir hvaða þráður á að vera þar.
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Wed 02. Jun 2010 12:48
by oddur11
bmw 325i / s 1989
pin 13 fuel pump relay
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Thu 03. Jun 2010 02:07
by Seli
ollræt, búinn að skipta um dularfulla relayið, en hann fer samt ekki í gang. Það virðist vera eins og spíssarnir opnist ekki eða eitthvað í áttina að því.
Þegar ég swappaði þá setti ég prefacelift vélarrafkerfi á facelift mótor og vírarnir á fuel railið tengjast mismunandi á pre face og facelift loomunum, var að pæla hvort að það gæti verið vandamálið?
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Thu 03. Jun 2010 02:12
by oddur11
þú ert allavega með dæluna sem var í mínum, hún á að vera í lagi.
ertu búin að prufa að svissa kertapúlþræðinum og skinjaranum sem er hjá stóra hjólinu framaná mótornum?
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Thu 03. Jun 2010 02:37
by Seli
nei er nú ekki búinn að því, hann er að fá neista og bensín þannig að ég held að ég sé búinn að útiloka allt nema spíssana eða eitthvað þar í kring.
Getur verið að tölvan fái ekki rafmagn og ná þess vegna ekki að opna spíssana?
Þetta er gamli m20b25 mótorinn hans ingó ef einhverjir þekkja til hans og gæti varpað ljósi á málið.
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Thu 03. Jun 2010 02:39
by Steini B
Sem var í touringnum? KT-671
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Thu 03. Jun 2010 02:51
by Seli
jessör, sá mótor
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Thu 03. Jun 2010 02:59
by Steini B
Þegar við settum þessa vél í hann þá lentum við í sama vandamáli
Það var eitthvað eitt tengi sem við tókum og sprautuðum vel af contact sprayi og þá hrökk hann í gang...
Ég bara get ekki munað nákvæmlega hvaða tengi það er, en mig minnir að það hafi verið hringlaga, einhverstaðar undir soggreininni...
Re: e30 325i vill ekki fara í gang

Posted:
Thu 03. Jun 2010 03:09
by agustingig
Steini B wrote:Þegar við settum þessa vél í hann þá lentum við í sama vandamáli
Það var eitthvað eitt tengi sem við tókum og sprautuðum vel af contact sprayi og þá hrökk hann í gang...
Ég bara get ekki munað nákvæmlega hvaða tengi það er, en mig minnir að það hafi verið hringlaga, einhverstaðar undir soggreininni...
tengi fyrir spíssaloomið ekki satt?