Page 1 of 1
Skipta um útvarp í 525ix (E34) - Vantar ráðleggingar.

Posted:
Sat 29. May 2010 10:22
by dreamspy
Daginn
Ég er með eitt stykki 94 árgerð af BMW 525ix með ónýtu útvarpi. Ég hafði hugsað mér að skipta um það bara sjálfur og er þá með nokkrar spurningar varðandi það sem vonandi einhver getur svarað:
Varðandi stærðina á útvarpinu, þá sýnist mér þetta vera bara hefðbundin stærð. Er það eitthvað sem ég þarf að passa mig á þegar ég kaupi útvarp í hann? Eitthvað varðandi festingar eða þess háttar?
Einnig er ég að spá hvort tengingarnar verði eitthvað til vandræða. Það er eitthvað þjófavarnarkerfi í bílnum sem virkar þannig að útvarpið læsir sér ef hann verður rafmagnslaus. Er þetta eitthvað sem ég þyrfti að hafa áhyggjur af?
Svo að lokum, varðandi það að fjarlægja tækið. Ég hef ekki mikið reynt að losa það, en tókst það ekki í fljótu bragði. Eru einhver trix sem þarf að beita til þess að losa svona tæki úr? Btw, þetta er orginal BMW útvarp.
p.s. ef einhver á útvarp sem passar í þennann bíl þá gæti ég haft áhuga á að kaupa, þarf ekkert endilega að vera með CD en væri samt betra.
Kveðja
Frímann
Re: Skipta um útvarp í 525ix (E34) - Vantar ráðleggingar.

Posted:
Sat 29. May 2010 10:56
by jon mar
Þú getur droppað hvaða tæki sem er í þetta sem er 1din. tengingar og annað á ekki að verða til vandræða, þó að það sé möguleiki að þú þurfir að víra það nýja uppá nýtt við vírana í bílnum. Nema auðvitað að það sé euro tengi, sem er nice.
Varðandi að losa tækið úr bílnum þá eru mögulega göt við endana á oem tækinu sem eiga að fara einhverjir pinnar í til að losa lásinn. Ef ekki þá eru eru aðrar leiðir til þess að losa hann. Ætti að vera sæmó augljóst.
Re: Skipta um útvarp í 525ix (E34) - Vantar ráðleggingar.

Posted:
Sat 29. May 2010 11:15
by Freyr Gauti
Ættir að kaupa þér millistykki í næstu raftækjabúð fyrir BMW svo þú þurfi ekki að klippa á neina víra, það er líklega eitthver vír sem sendir merki inn á orginal spilarann að læsa sér og hann blindast væntanlega þegar að þú setur millistykki í bílinn, allavega hefur hann ekkert til að tengjast í öðrum spilara nema þú setjir annan BMW spilara.
Varðandi festingu þá gæti verið svona eins og Jón Mar lýsir þar sem þig vantar að setja mjóan pinna eða skrúfjárn inn en þar sem að þetta er orginal spilari grunar mig að hann sé skrúfaður fastur og þá þarftu að losa innréttingarplöstin í kringum hann til að komast að þeim.
Re: Skipta um útvarp í 525ix (E34) - Vantar ráðleggingar.

Posted:
Sat 29. May 2010 11:17
by dreamspy
jon mar wrote:Þú getur droppað hvaða tæki sem er í þetta sem er 1din. tengingar og annað á ekki að verða til vandræða, þó að það sé möguleiki að þú þurfir að víra það nýja uppá nýtt við vírana í bílnum. Nema auðvitað að það sé euro tengi, sem er nice.
Varðandi að losa tækið úr bílnum þá eru mögulega göt við endana á oem tækinu sem eiga að fara einhverjir pinnar í til að losa lásinn. Ef ekki þá eru eru aðrar leiðir til þess að losa hann. Ætti að vera sæmó augljóst.
Það eru einmitt einhverjar festingar þarna á endanum. Kíki á þetta.
kv
Frímann
Re: Skipta um útvarp í 525ix (E34) - Vantar ráðleggingar.

Posted:
Sat 29. May 2010 11:34
by jon mar
Freyr, vörnin er í spilaranum

ef hann missir straum þarf að setja inn code sem fylgir með(en er örugglega löngu týndur)
Hættu svo að úða í þig brunch og drífðu þig norður að kjósa

Re: Skipta um útvarp í 525ix (E34) - Vantar ráðleggingar.

Posted:
Sat 29. May 2010 12:03
by dreamspy
jon mar wrote:Freyr, vörnin er í spilaranum

ef hann missir straum þarf að setja inn code sem fylgir með(en er örugglega löngu týndur)
Hættu svo að úða í þig brunch og drífðu þig norður að kjósa

Ahh einmitt ég hélt það. Það er bara spilarinn kannski sem detectar ef hann missir straum, og læsir sér þá.
Re: Skipta um útvarp í 525ix (E34) - Vantar ráðleggingar.

Posted:
Sat 29. May 2010 15:02
by dreamspy
Hvernig líta annars svona euro tengi út? Fann engar myndir á netinu. Og hvaða búðir mynduð þið helst mæla með að ég myndi kíkja í til að finna svona millistykki?
Re: Skipta um útvarp í 525ix (E34) - Vantar ráðleggingar.

Posted:
Sat 29. May 2010 16:49
by Berteh

Þetta er dæmi um millistykki úr ISO í euro
ps. ISO er stóra en euro eru hin 2
Re: Skipta um útvarp í 525ix (E34) - Vantar ráðleggingar.

Posted:
Sat 29. May 2010 16:50
by Berteh
og svona tengi fást bara í n1 og flestum verslunum sem selja bílútvörp
Re: Skipta um útvarp í 525ix (E34) - Vantar ráðleggingar.

Posted:
Sat 29. May 2010 16:58
by dreamspy
Ahh ok , þá sýnist mér að ég sé með ISO tengi í bílnum. Takk fyrir þetta!
Re: Skipta um útvarp í 525ix (E34) - Vantar ráðleggingar.

Posted:
Sat 29. May 2010 16:59
by garnett91
ég fekk svona stykki í nesradio fyrir einhvern 1500 kall mjög einfallt og þægilegt.