bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vesen með E32 735i https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=44817 |
Page 1 of 1 |
Author: | dabbinn [ Mon 17. May 2010 13:14 ] |
Post subject: | Vesen með E32 735i |
Daginn Er með einn gamlan E32 sem mig vantar smá hjálp með. Málið er að þegar þegar maður svissar á bílinn þá fer þjófavörnin í gang og hættir ekki fyrr en maður aftengir rafgeyminn. (Bíllinn fer ekki í gang þó svo að geymirinn sé í góðu standi.) Prufaði um daginn að starta honum með því að tengja pólana, sem fara á geyminn , beint í startkapla sem voru tengdir við annan bíl og þá fór hann léttilega í gang. Síðan tengdi ég pólana aftur við geyminn og allt gekk fínt, þangað til ég opnaði einhverja hurð á bílnum, þá drap hann á sér og ekki séns að starta honum aftur nema með sömu aðferð. Það er ekki mælt með að starta bílnum með þessari aðferð oft þar sem tölvan er ekki alveg að "fíla" það. Þetta er ekki ósvipað dæmi og á þessu videoi en þarna er BMW 750. http://www.youtube.com/watch?v=XcBdv9dUOe0 Eins og sést á commentunum með þessu videoi þá á að vera nóg að unplugga örygginum fyrir þjófavörnina en þau eru ekki staðsett á sama stað í þessum bílum, þe 735 og 750 og því veit ég ekki hvar það er. Hefur einhver hugmynd um hvað hægt sé að gera, fyrir utan það að tengja hann við tölvu hjá IH/BogL með tilheyrandi okurkostnaði. Kv.Dabbinn |
Author: | gstuning [ Mon 17. May 2010 15:32 ] |
Post subject: | Re: Vesen með E32 735i |
Þjófavörnin í bílnum er að stoppa þig. Þannig að þig vantar að vita hvernig á að komast framhjá henni |
Author: | Axel Jóhann [ Mon 17. May 2010 23:52 ] |
Post subject: | Re: Vesen með E32 735i |
Svo er náttúrulega alltaf kosturinn að fara með hann í Eðalbíla eða TB, þeir eru víst nokkuð sanngjarnir. ![]() |
Author: | dabbinn [ Tue 18. May 2010 11:18 ] |
Post subject: | Re: Vesen með E32 735i |
Vitið þið hvar er hægt að nálgast upplýsingar um öll relay-in og og öryggin í bílnum (á netinu)? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |