Page 1 of 1
Smit á drifi í z3

Posted:
Sat 15. May 2010 21:51
by Alex GST
datt í hug að spurja ef þetta er eitthvað algengt... En tók eftir því áðan að það smitar/dropar úr drifinu hjá mér, Smitið kemur ofan frá ef horft er aftan á drifið (fyrir aftan bílinn) og lekur niður meira hægra megin.
kannski erfitt að greina hvaðan þetta kemur án þess að sjá þetta, En maður sér þetta ekki svo vel þegar maður skoðar þetta þar sem þetta kemur að ofanverðu.
einhver pakkdós/pakking ?
kem með myndir ef það er betra:)
Re: Smit á drifi í z3

Posted:
Sat 15. May 2010 21:53
by Jón Ragnar
Hjá mér lak af drifinu og það var bara meðfram hraðamælinum.
Keypti nýjan o hring á það og hann hefur verið til friðs síðan

Re: Smit á drifi í z3

Posted:
Sat 15. May 2010 21:59
by Einarsss
Getur líka verið að öndunin fyrir drifið sé stífluð, þetta er pinni sem er efst á drifinu sem er smá holu á .. getur tjekkað hvort að það sé drulla eða eitthvað að blokka öndunina
Re: Smit á drifi í z3

Posted:
Sat 15. May 2010 22:10
by Alex GST
aaa, getur verið þessi öndun, var eitthvað að reyna þreifa á þessum pinna, var allur í drullu, og það lekur niður meðfram tenginu...
hvernig er best að losa þessa stíflu ef þetta er það ?
Re: Smit á drifi í z3

Posted:
Sat 15. May 2010 22:14
by Einarsss
prófa skjóta smá lofti í holuna .. bara stutt samt svo þú fáir ekki olíu upp til baka.
Re: Smit á drifi í z3

Posted:
Sun 16. May 2010 04:49
by Alex GST
okei, hvar smitar samt ef öndunin er stífluð ?
Re: Smit á drifi í z3

Posted:
Sun 16. May 2010 09:54
by Einarsss
gæti lekið með pakkdósum,O hringnum á hraðaskynjaranum... myndast þrýstingur þarna inni þegar olían hitnar og öndunin er stífluð
Re: Smit á drifi í z3

Posted:
Sun 16. May 2010 16:43
by Alex GST
okei, ég skoða þetta, takk