bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

vantar aðstoð í rafmagni
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=44735
Page 1 of 1

Author:  Tasken [ Wed 12. May 2010 21:42 ]
Post subject:  vantar aðstoð í rafmagni

Image

Þetta er semsagt skiptinga plug fyrir skiptingu í 750 hjá mér sem ég sleit í sundur :argh:

Það sem ég er að spá í er hvernig og hvort hægt sé að setja þetta saman.... þá aðalega þessa tvo hvítu og brúnu sem eru með óeinangruðu vírunum utan um ?

svo get ég ekki betur séð en að út úr snúrunni hafi dregist einhverskonar bandspottar hvaða tilgangi ætli það þjóni.

Er alveg grænn í svona rafmagns dóti svo það væri æðislegt að fá aðstoð með þetta

Author:  Einarsss [ Wed 12. May 2010 22:10 ]
Post subject:  Re: vantar aðstoð í rafmagni

Þetta er einhver auka skerming svo að það komi ekki truflun frá hinum sem liggja utan um.. ættir að geta lóðað þetta saman aftur og einangrað þessa tvo með teipi sérstaklega

Author:  jens [ Wed 12. May 2010 22:49 ]
Post subject:  Re: vantar aðstoð í rafmagni

Og bandið er bara til styrktar.

Author:  Tasken [ Wed 12. May 2010 22:51 ]
Post subject:  Re: vantar aðstoð í rafmagni

okei en þarf ekki að tengja þá saman þessa "skermingu" sem er utan um ?

Author:  Einarsss [ Wed 12. May 2010 22:53 ]
Post subject:  Re: vantar aðstoð í rafmagni

ætti ekki að þurfa en þú tjekkar á hinum endanum hvort að skermingin sé notuð í að tengja við pinna .. efast samt um það

Author:  Tasken [ Wed 12. May 2010 23:17 ]
Post subject:  Re: vantar aðstoð í rafmagni

takk fyrir þetta meistarar fer þá í það á morgun að lóða þetta saman og ganga frá þessu.
var orðinn skíthræddur um að þetta yrði eitthvað major issue

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/