Page 1 of 1

Vantar upplýsingar um græjurnar í bílnum mínum

PostPosted: Tue 13. Apr 2010 15:53
by geirisk8
Sælir,

Mig vantar að fá upplýsingar um græjurnar sem eru í 1999 BMW 540 bílnum mínum.

Hér er mynd:
Image

Það eru slatti af hátölurum í bílnum og hljóðkerfið hljómar mjög fínt og þegar ég nota geisladiskamagasínið kemur djúpur og fínn bassi en þegar ég nota kasettu með snúru þá dettur allur bassi út einhvernveginn. Ég notaði þessa sömu spólu í öðrum bíl sem var með bassaboxi þannig að það er allt í lagi með spóluna.

Getur einhver veitt upplýsingar ?

Re: Vantar upplýsingar um græjurnar í bílnum mínum

PostPosted: Tue 13. Apr 2010 16:17
by Andri Fannar
Taparu bara ekki gæðunum í gegnum það að nota spólu?

CD vs Casette er ekkert sambærilegt.

Annars eru mismunandi stillingar fyrir CD/Magasin/FM hjá mér. Tjékkaðu á því.

Re: Vantar upplýsingar um græjurnar í bílnum mínum

PostPosted: Tue 13. Apr 2010 17:08
by geirisk8
Auðvitað tapast smá gæði en ekki það mikið að græjurnar hljóma eins og lítið útvarpstæki. Ég var með bassagræjur í 520 bíl sem var ekki með geislaspilara og sándið var ágætt, þrátt fyrir kasettu var mikill bassi.

Annars, ertu með samskonar græjur ?

Ég ætla að athuga hvort það séu sér stillingar fyrir cd/spólu/fm

Re: Vantar upplýsingar um græjurnar í bílnum mínum

PostPosted: Tue 13. Apr 2010 18:03
by dabbiso0
Þú ert náttúrulega að tala um Analog vs. Digital
Það er Talsverður munur á gæðum.

Mæli með http://www.bavariansoundwerks.com/product/515/282/BMW-E39-iPod-Kit-by-DICE/
Ef þú ert í dýrari hugleiðingum.

Re: Vantar upplýsingar um græjurnar í bílnum mínum

PostPosted: Wed 14. Apr 2010 08:15
by geirisk8
Ég veit alveg hver munurinn er. Ég er enginn nýgræðingur í tónlist og pælingum í kringum það. Ég er búinn að vera í upptökupælingum í mörg ár og skil vel hvernig þetta virkar allt.

Ég er búinn að skoða græjurnar nánar og það eru ekki sérstillingar fyrir cd/spólu/fm. Eina sem er að þegar ég skelli spólunni í þá dettur allur bassi út.

Veit einhver hvað þessar græjur heita svo ég geti googlað ? Ég hef nefnilega aldrei séð þetta í öðrum bíl áður.

Re: Vantar upplýsingar um græjurnar í bílnum mínum

PostPosted: Wed 14. Apr 2010 08:21
by Alpina
geirisk8 wrote:Ég veit alveg hver munurinn er. Ég er enginn nýgræðingur í tónlist og pælingum í kringum það. Ég er búinn að vera í upptökupælingum í mörg ár og skil vel hvernig þetta virkar allt.

Ég er búinn að skoða græjurnar nánar og það eru ekki sérstillingar fyrir cd/spólu/fm. Eina sem er að þegar ég skelli spólunni í þá dettur allur bassi út.

Veit einhver hvað þessar græjur heita svo ég geti googlað ? Ég hef nefnilega aldrei séð þetta í öðrum bíl áður.



http://data.bmrparts.com/bmwparts/4102.html


Þetta er eflaust DSP system sem þú ert með.. var með svona í 540 bílum sem ég átti,,
einmitt með sjónvarpi og öllu í öðrum þeirra,,+ 6 cd magazine
meira en nóg fyrir mig,

Fannst frábær gæðin í þessu