Page 1 of 2

Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Mon 22. Mar 2010 09:22
by JOGA
Bíllinn titrar þegar ég stíg á bremsuna.
Var nokkuð viss um að þetta væru diskarnir til að byrja með en nú er ég í vafa.

Er nokkuð viss um að þetta komi svolítið og fari. Fer reyndar aldrei en verður stundum töluvert áberandi og þá óháð hraða.

Fóðringarnar að framan eru allar mjög fínar nema "stabilizer links" sem eru orðnir svolítið slitnir. Aðrar virka mjög nýlegar.

Hvað dettur fólki í hug? Diskar og klossar eru mjög lítið slitnir og ég vill reyna að sleppa við að skipta þeim út ef þetta er eitthvað annað.

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Mon 22. Mar 2010 13:35
by Bartek
bremsu diskar... eg hef lendi oft i þessu hvenar þeir eru ordin lélegir :(

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Mon 22. Mar 2010 13:38
by ///M
Lennti jon[eitthvað] ekki í þessu með e36 323i? Var búinn að skipta nánast út öllu nema boddyi þegar hann fann hvað var að :o

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Mon 22. Mar 2010 17:38
by Maddi..
///M wrote:Lennti jon[eitthvað] ekki í þessu með e36 323i? Var búinn að skipta nánast út öllu nema boddyi þegar hann fann hvað var að :o


viewtopic.php?t=9107

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Mon 22. Mar 2010 18:54
by JOGA
Hjá honum virðist þetta hafa tengst dempurum. Ég er með mjög nýlega Sachs Super Touring dempara undir mínum. Stimplaðir seint 2007.
Efast um að það sé málið.

Ætli ég þurfi þá ekki að fara í svona útilokunar vesen :x

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Mon 22. Mar 2010 19:01
by crashed
var með innan við árs gamla diska hjá mér (reyndar úr bílanaust) og hann víbraði allur þegar ég bremsaði en mjög misjafnlega svo henti ég diskunum undan og seti nýja og klosana og þetta minkaði talsvert sá víbríngur sem eftir er er í ónítri spyndil kúlu

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Mon 22. Mar 2010 19:29
by JOGA
Málið er bara að þetta kemur svolítið og fer. Það er ástæðan fyrir því að mér finnst diskar ólíklegir. Hefði haldið að þetta væri nokkuð konstant ef þetta væru diskar.

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Mon 22. Mar 2010 21:15
by x5power
ertu búinn að athuga spyrnu fóðringarnar?

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Tue 23. Mar 2010 18:12
by Axel Jóhann
Já. spyrnu fóðringarnar eru líklegastar.

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Tue 23. Mar 2010 20:16
by oddur11
Axel Jóhann wrote:Já. spyrnu fóðringarnar eru líklegastar.

Var tad hja mer i bædi e30 og e46

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Wed 24. Mar 2010 09:30
by Energy
Prófaðu að hreinsa haldarana og festa þá og athuga hvort allir boltar sé ekki pottþétt fastir og járnspennan fyrir dæluna;)

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Sun 04. Apr 2010 12:37
by Xavant
Dettur helst í hug spyrnufóðringar að framan?
Einmitt nákvæmlega eins tirtringur í e46 hjá mér, sprnufóðringin er alveg búin ..

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Sun 04. Apr 2010 13:42
by Axel Jóhann
Líka h/m í e34 já mér, það er spyrnufóðringin sem er ónýt. kemur bara þegar ég bremsa. :thup:

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Sun 04. Apr 2010 23:00
by JOGA
Þarf að athuga þetta. Minnir samt að þær hafi verið alveg bling bling þegar ég var að dunda þarna um daginn :|

Re: Víbringur þegar bremsað er [E36]

PostPosted: Mon 05. Apr 2010 22:59
by JOGA
Skreið undir og tók mynd af fóðringunni.

Get ekki betur séð en að þetta sé nánast nýtt. Hvað annað getur orsakað svona. Var búinn að heyra að stirður eða fastur stimpill í dælu gæti orsakað svona. Myndi það stemma við þetta? Tek líka eftir því að þetta minnkar ef ég bremsa fast úr svolitlum hraða. Mest við lítið átak.

Image