bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Spurnngar varðandi að bletta og ryðbæta.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=43614
Page 1 of 1

Author:  Vlad [ Tue 16. Mar 2010 00:37 ]
Post subject:  Spurnngar varðandi að bletta og ryðbæta.

Jæja nú ætla ég aðeins að reyna bletta í bílinn fyrir sumarið þar sem það eru litlir ryðblettir á fáum stöðum á bílnum langaði bara vita hversu grófan/fínan sandpappír menn séu almennt að nota á lakkið til að pússa burt ryðið og hvernig sparsl, ef ég þarf þess á annað borð þar sem þetta er bara smá yfirborðsryð.

Síðan langaði mig að spyrja hvar sé best að fá málninguna blandaða fyrir mann, hef heyrt af poulsen en hef ekki gert mér ferð í bæinn til að gá þangað...

Síðan að lokum langar mér að spyrja hvort einhver hérna geti grafið upp litanúmerið fyrir "Granitsilber metallic" get nefninlega ömögulega fundið það... :?

Author:  gulli [ Tue 16. Mar 2010 00:44 ]
Post subject:  Re: Spurnngar varðandi að bletta og ryðbæta.

http://www.malningarvorur.is/pages/ Lágmúla 9. Mæli hiklaust með þeim,, fljótir að afgreiða mann og vita uppá hár hvað þeir eru að gera. Svo er líka smávegis afsláttur sem félagsmenn bmwkrafts fá á hjá þeim :thup: Og ég mæli með að þú farir bara til þeirra og segji þeim hvaða pælingar þú ert með, og þeir bara labba sjálfir um og ná i það sem er best að nota, bara snild og mjög þægilegt.

Author:  ValliB [ Tue 16. Mar 2010 11:51 ]
Post subject:  Re: Spurnngar varðandi að bletta og ryðbæta.

Granitsilber color code-ið er 237

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/