Jæja nú ætla ég aðeins að reyna bletta í bílinn fyrir sumarið þar sem það eru litlir ryðblettir á fáum stöðum á bílnum langaði bara vita hversu grófan/fínan sandpappír menn séu almennt að nota á lakkið til að pússa burt ryðið og hvernig sparsl, ef ég þarf þess á annað borð þar sem þetta er bara smá yfirborðsryð.
Síðan langaði mig að spyrja hvar sé best að fá málninguna blandaða fyrir mann, hef heyrt af poulsen en hef ekki gert mér ferð í bæinn til að gá þangað...
Síðan að lokum langar mér að spyrja hvort einhver hérna geti grafið upp litanúmerið fyrir "Granitsilber metallic" get nefninlega ömögulega fundið það...
