Page 1 of 1

Drepur á sér

PostPosted: Tue 03. Feb 2004 21:35
by Jökull
málið er þannig að hann hættir bara að ganga eins og honum vanti bensín og er lengi í gang aftur ég var að taka hann út úr skúrnum eftir 6 mánaða viðgerð 318i 89'og ég skipti um kveikjulok,hamar,kerti,heddpakkningu,bensínsíu og hreinsaði sogreinina hvað gæti þetta verið?

PostPosted: Wed 04. Feb 2004 10:58
by gstuning
Tölva
loftflæðimælir
bensíndæla
bensín dæla í tank
relay

PostPosted: Wed 04. Feb 2004 15:55
by Jökull
En hvar getur maður látið hann í tölvu og hvað kostar það?

PostPosted: Wed 04. Feb 2004 16:31
by Dr. E31
B&L, kanski :?: :idea:

PostPosted: Wed 04. Feb 2004 17:28
by Jökull
Ég vissi það svosem var bara að pæla hvort það væri hægt á öðrum stað þar sem það væri kannski ódýrara en ég hringdi uppi BogL áðan og aflesturinn kostar nú bara 3000 kall :)

PostPosted: Wed 04. Feb 2004 17:35
by Dr. E31
3000 kúlur eru ekki neitt fyrir athugun í tölvu!!! :shock:

PostPosted: Wed 04. Feb 2004 17:38
by ses
já, mig minnir að svona tölvu aflesning kosti mig 5500 spírur fyrir focusinn uppí Brimborg!

PostPosted: Wed 04. Feb 2004 19:56
by saemi
Er hægt að lesa eitthvað af 89 módel af 318i bíl, þetta er væntanlega E30 bíll. Mér finnst það frekar hæpið. Einhver þristagúru hérna, komment please!

PostPosted: Wed 04. Feb 2004 21:30
by Jökull
Ég er nú bara að fara með hann því að ég þarf að gera það ég er að brjálast út af þessu :burn: ,fyrst bræddi hann úr sér ég laga það og allt í gúddi en svo núna viku eftir að ég kem honum út þá byrjar hann að drepa á sér eftir sinni hentusemi :cry: svo núna er hjöruliðurinn á drifskaftinu byrjaður að láta í sér heyra og bíllinn titrar allur, ég held að bíllinn sé ekkað fúll :? svo lekur stírismaskínan :evil: