bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=43395 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bandit79 [ Sat 06. Mar 2010 23:46 ] |
Post subject: | Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 |
Málið er að ég er með E36 320Ia M52B20 sem er kominn nokkra KM yfir 265.000. Og greyið er byrjaður að vera soldið ljáinn, hann brennur bæði olíu og kælivökva og ég þarf að lofttæma allavega aðra hverja viku í þessu helvítis frosti hér í DK til að halda bílnum heitum. En hann stendur sig samt eins og hetja á meðan ég man eftir að dæla á hann vökvum. Powerið er alveg að skila sér (já alveg heil 150 HP -/- ) og hann fer alltaf í gang og keyrir bara. Samt er smá ventlatikk fyrstu 2-3 sek þegar hann er kaldur. Það bendir allt á að heddið/heddpakkning sé að nálgast síðustu kílómetrana og það kostar auðvitað soldin pening að láta laga þetta. Og ég segi bara tilhvers þegar ég hef fundið nokkur góð eintök af M52B25/28 og M54B25 fyrir ca. 4000-5000 DKK. M52B25 - Mestu leiti plug'n play ? er ekki mikilvægast að fá tölvuna með, EWS boksið og lykil og að loomið er fyrir auto ? en hvað með pústið ? er nóg að skipta um fremri hlutann ? M52B28 - sama og B25 ? en ræður drifið,öxlar og drifskaptið frá B20 við aflið ? M54B25 - fann nefnilega eina góða sem er ekki ekin nema 93þús km. Og er það ekki bara loomið sem þarf að vera fyrir auto? þar sem ég er nokkuð viss um að það er sama í m52 og m54 ? En ef það er fyrir manuel .. er ekki hægt að kaupa bara mótorloom sem gengur að auto? Auðvitað tölvu og ews partana... en pústkerfið ? er nóg að skipta um fremri partinn og rest (hvarfi og út í enda) ? langaði bara að heyra í ykkur fyrst áður en ég tek ákvörðun varðandi þetta mál ![]() Nenni bara ekki B20 aftur þótt að það sé lang þæginlegast .. ef maður ætlar sér þetta, þá er stærra alltaf betra ![]() Með Kveðju Helgi |
Author: | Alpina [ Sun 07. Mar 2010 13:55 ] |
Post subject: | Re: Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 |
M54 er oft eitthvað vesen,, minnir að það sé talað um það inni á E30 spjallborðunum |
Author: | Alpina [ Sun 07. Mar 2010 13:59 ] |
Post subject: | Re: Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 |
M52B28 er alveg málið |
Author: | BirkirB [ Sun 07. Mar 2010 15:27 ] |
Post subject: | Re: Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 |
Bandit79 wrote: M52B25 - Mestu leiti plug'n play ? er ekki mikilvægast að fá tölvuna með, EWS boksið og lykil og að loomið er fyrir auto ? en hvað með pústið ? er nóg að skipta um fremri hlutann ? -Það er sama púst á m52b25 og b20...hef ekki hugmynd með hitt...myndi samt halda að þetta væri bara plug'n play Bandit79 wrote: M52B28 - sama og B25 ? en ræður drifið,öxlar og drifskaptið frá B20 við aflið ? Ég er með drifdrasl úr m52b20 bíl og það hefur hingað til ráðið við m52b25. |
Author: | Bartek [ Sun 07. Mar 2010 20:40 ] |
Post subject: | Re: Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 |
m50b25 er málið...ekkert vanos vesen... ![]() |
Author: | Zed III [ Mon 08. Mar 2010 09:31 ] |
Post subject: | Re: Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 |
Vertu viss um að allt í sambandi við EWS (ræsivörnina) sé leyst áður en þú byrjar. |
Author: | Dóri- [ Mon 08. Mar 2010 15:29 ] |
Post subject: | Re: Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 |
er ekki hægt að nota bara kubbinn úr b28 tölvunni við b20 tölvuna og halda b20 vélarloominu ? |
Author: | Aron Fridrik [ Mon 08. Mar 2010 19:26 ] |
Post subject: | Re: Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 |
m52b28 án efa |
Author: | Stefan325i [ Mon 08. Mar 2010 20:46 ] |
Post subject: | Re: Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 |
Ef þú ert að spá í að fara í einhverjar glórulausar hestaflaaukningar þá er það M50B25, stál blokk. En ef þú ert bara að spá í að fá þer fínan mótor þá er sennilega M52b28 ekki slæmur kostur. |
Author: | Aron Fridrik [ Mon 08. Mar 2010 21:28 ] |
Post subject: | Re: Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 |
þá þarf hann samt að breyta úr obdII í obd I |
Author: | Bandit79 [ Mon 08. Mar 2010 22:44 ] |
Post subject: | Re: Vélarswapp M52B20 í M52B25/8 eða M54B25 |
Held að þetta endi með M52B25 eða B28 ef restin af kerfinu þolir það. En Hvernig er fæ ég EWS málið á hreint ? Þarf ég ekki að fá boks og lykil með vélini ? Get ég notað sama pústkerfið ? Eða þarf ég að skipta um allt kerfið ? Og auðvitað vélartölvuna ? loomið passar á meðan það kemur úr bíl með auto ? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |