Page 1 of 1

E30 bremsupælingar

PostPosted: Fri 26. Feb 2010 11:01
by Seli
Fyrst að það er alveg kominn tími á bremsur hjá mér fór ég að pæla, í bílum með abs eru loftkældir diskar samkvæmt mínum bestu heimildum, en venjulegir í non abs bremsum. Er ekkert vesen að skella loftkældum í non abs bíl og hvernig sé ég hvort að það er abs í dollunni minni, 318i coupe 87 módel nánar tiltekið.

Og fyrst ég er kominn með þráð um þetta, hversu mikið vesen er að skella diskum að aftan í bíl með skálabremsur?

Re: E30 bremsupælingar

PostPosted: Fri 26. Feb 2010 11:14
by Einarsss
diskarnir eiga að vera jafn stórir og breiðir þannig að það er ekkert mál að skipta um framdiskana, að aftan þarftu hinsvegar afturspyrnur með diskum.

Re: E30 bremsupælingar

PostPosted: Fri 26. Feb 2010 11:16
by Birgir Sig
einarsss wrote:diskarnir eiga að vera jafn stórir og breiðir þannig að það er ekkert mál að skipta um framdiskana, að aftan þarftu hinsvegar afturspyrnur með diskum.



ég á afturspyrnur með diskum úr ix bíl,,

loftkældir diskar:D