bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 21. Jun 2025 18:27

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 9 posts ] 
Author Message
PostPosted: Mon 22. Feb 2010 21:34 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Sælir!

Teppið frammí bílstjóramegin er frekar blautt og ég fór að pota eitthvað undir bílinn og þar er amk. eitt gat þar sem ég get potað upp í teppið. :( Þannig að planið er semsagt að fjarlægja teppið og laga botninn.

Ég er búinn að fjarlægja sætið, miðjustokkinn og stykkið í kringum skiptistöngina... hvað þarf ég að rífa meira í burt til að ná teppinu úr? Er t.d. að spá í plastlistunum við hurðarnar og eitthvað af mælaborðinu? Mér sýnist ég þurfa að taka bensínpedalann (er honum bara kippt upp með flötu skrúfjárni?)

Öll góð ráð mjög vel þegin! :-)

Helst vil ég auðvitað þurfa að rífa sem minnst svo maður eigi meiri möguleika á að koma þessu aftur saman. :lol:

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 22. Feb 2010 21:36 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Vil benda á DIY hlutann sem er sticky í tæknilegar umræður :mrgreen:

Geturu ekki notað þetta eitthvað?

aronjarl wrote:
Best er að byrja á að fjarlægja afturbekk- sessan er toguð upp út við hurðar opið sitthvoru meginn, hægt er að taka bakið afturí en það er gert þannig að það eru 2 10mm boltar neðst útí hornunum, þegar það er laust er bakið togað upp úr svokölluðum hönkum sem bakið hangir á.

framsæti: framsætin eru frekar auðveld aftaná sleðanum eru 17mm boltar og framaná sleðanum eru 17mm rær tappar eru yfir rónnum,
í þetta þarf einfaldlega 17mm topp og skrall.

hurðalistar: hurðalistarnir sem liggja ofaná teppinu eru með leiðinlegri partinum, mjög gott er að reyna draga þá úr til að byrja með, það er ákveðin taktík sem þarf til að ná þessu heilu úr get varla lýst þessu betur en GOTT ER AÐ HAFA EITT Í HUGA - smellurnar sem halda þessu niðri er mjög auðvelt að brjóta þegar maður ætlar að setja listann í aftur - MÆLI MEÐ að kaupa þessar smellur í B&L eða TB áður en þið raðið þessu í aftur.!¨

þá er það miðjustokkur: miðjustokkur er einfaldur öskubakkanum afturí er bara smellt úr og þar er 10mm plast ró sem er losuð, handbremsu haldfangið dregið af og sokkurinn á handbremsunni smellt af lyft handbremsunni upp aðeins og stokkurinn dreginn úr - muna að aftengja ljósið í öskubakka.!

miðjustokkur fremri: sokkur tekin frá á gírstöng þar undir er 10mm plastró,
öskubakki losaður fremst á honum eru 2 stjörnu skrúfur þá er hann laus, aftengja síkarettu kveikjara og ljós í öskubakka þá er hægt að fjarlægja öskubakka, alveg femst á stokknum undir í hornunum sem stokkurinn nær eru plast smellur þær teknar úr, svo er oft skrúfa sirka undir hraðanum á miðstöðinni rofi þar sem stokkur og innrétting mætast,
ef það eru rafmagns rúður í bílnum þá eru bara tökkunum smellt uppúr og aftengdir, stokknum mjakað úr.

hátalara hlífar: farþega meginn er bara þéttikannturinn á hurðinni tekinn frá, stundum skrúfa á spjaldinu - spjaldið laust,
bílstjóra meginn - þarf arf að losa hlífina sem er fyrir ofan fæturnar þar eru 3 smellur alveg efst í röð, 1 á stýristúpunni þá er hægt að draga hana frá, til að losa hátalara spjaldið bílstjórameginn þarf að losa húddopnarann þar eru 8mm boltar sem leiðinlegt er að komast að, þéttikantur á hurð tekinn frá skrúfa á spjaldinu þá er það laust.

gólf hjá bílstjóra: Þar eru 3 hlutir sem þurfa að fara.!
þar sem kúplingin fer að gólfi þar eru gúmmí púði sem fjarlægist með + skrúfjarni, bensíngjöf - á henni er splitti þar´sem hún tengist við petala,
svo er að ná besnsíngjöf burt henni er smellt niðrí gólfið ( getur verið mjög stíf) best er að ná einhverju undir hana (skrúfjárni) og tosa upp og reyna spenna með skrúfjárni, fyrir aftan hana er ''pinni'' sem gjöfin leggst á þegar maður ''stígur í botn'' plastkápa dregin upp þar kemur í ljós ró sem er losuð með 12mm ró minnir mig pinnanum skrúfað upp.

öryggisbeltin: festingarnar fyrir öryggisbeltin fyrir farþega frammí eru losuð við gólf þarf ekki að taka úr taka fremri bolta losa uppá honum þá er hægt að snúa því þá er það ekki fyrirstaða.




Farið er fyrir allt og tékkað hvort gólfið sé eki laust, svo er gólfið dregið úr.! það segir sig sjálft hvernig það fer fram,

til að setja gólfið í aftur getur verið pínu mál, og mæli ég með einum aðstoðarmanni í það, getur verið soldið mál að teppinu undir miðstöðina sumir haf þurft að klippa örlítið úr ef það gengur illa, gott er að halla afturendanum svolítið upp smegja þessu undir þannig svo er bara að raða sömu hlutum í aftur ætla ekki að skrifa það...

ég tók því miður engar myndir af þessu ég reyndi bara að lýsa þessu eins og ég gat getur kannski verið að það sé einhver smá villa hér í þessu...


takk fyrir...

og gangi þér vel,,, 8)

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 22. Feb 2010 21:45 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Shiiii illa bösted þarna!! #-o ](*,) :loser: :lol:

Kíkti í DIY þráðinn en bara fyrsta póstinn og linkana þar! :oops: Kannski ég bara bæti við link í DIY þráðinn inn á þennan þráð! :mrgreen:

Takk Árni :thup: (og Aron Jarl fyrir góða lýsingu! :thup: )

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 22. Feb 2010 21:49 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
iar wrote:
Shiiii illa bösted þarna!! #-o ](*,) :loser: :lol:

Kíkti í DIY þráðinn en bara fyrsta póstinn og linkana þar! :oops: Kannski ég bara bæti við link í DIY þráðinn inn á þennan þráð! :mrgreen:

Takk Árni :thup: (og Aron Jarl fyrir góða lýsingu! :thup: )

No probs, gangi þér vel! :D

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 22. Feb 2010 22:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
virkaði fínt fyrir mig þegar ég var að koma teppinu aftur fyrir á réttan stað að setjast á afturbekkinn og ýta með löppunum þar sem þetta var orðið frekar strembið að ýta teppinu með höndunum.

Leiðinlegasti parturinn er að koma teppinu aftur undir miðstöðina imo

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 26. Feb 2010 20:03 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Þessar leiðbeiningar hjá Aroni eru ekkert minna en snilld!! :clap:

Nokkrar pælingar, og spurningar samt...

aronjarl wrote:
gólf hjá bílstjóra: Þar eru 3 hlutir sem þurfa að fara.!
þar sem kúplingin fer að gólfi þar eru gúmmí púði sem fjarlægist með + skrúfjarni, bensíngjöf - á henni er splitti þar´sem hún tengist við petala,
svo er að ná besnsíngjöf burt henni er smellt niðrí gólfið ( getur verið mjög stíf) best er að ná einhverju undir hana (skrúfjárni) og tosa upp og reyna spenna með skrúfjárni, fyrir aftan hana er ''pinni'' sem gjöfin leggst á þegar maður ''stígur í botn'' plastkápa dregin upp þar kemur í ljós ró sem er losuð með 12mm ró minnir mig pinnanum skrúfað upp.


Þetta er eitthvað öðruvísi hjá mér enda sjálfskiptur. Það er engin plastkápa á honum eða ró. Það er líka hægt að ýta honum niður, er þetta ekki takkinn sem fer niður ef maður stendur hann alveg í gólfið og skiptingin skiptir niður um þrep? Ætli ég komi teppinu þarna framhjá eða einhver önnur leið að losa hann?

aronjarl wrote:
öryggisbeltin: festingarnar fyrir öryggisbeltin fyrir farþega frammí eru losuð við gólf þarf ekki að taka úr taka fremri bolta losa uppá honum þá er hægt að snúa því þá er það ekki fyrirstaða.


Þetta virðist ekki eiga við hjá mér, ætli það sé ekki 2door vs. 4door dæmi. Ég þurfti bara að losa tvær plastskrúfur neðst úr panelinu á milli hurðanna. Og get alveg tekið undir að hurðalistarnir eru leiðinlegir að losa!! :x

Svo smá pæling með loftrásirnar niður meðfram miðjustokknum og niður undir framsætin. Ég er búinn að fjarlægja millistykkið (litlar plast "harmonikkur" hvoru megin við miðjustokkinn). Lyftir maður bara teppinu ofan af túðunum sem fara niður eða losar maður þær eitthvað meira?

Ég er ekki byrjaður að toga teppið úr en ég get ímyndað mér að það verði skrautleg aðgerð að reyna að koma því aftur á sinn stað! :lol:

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 27. Feb 2010 04:56 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27
Posts: 6772
Mjög létt að koma teppi í e30 aftur, tók mig ekki mikið lengur en 3 mín og ég var einn seinast þegar ég gerði það :roll:

skar teppið ekkert eða svoleiðis skítmix,


málið er bara að stilla teppinu vel upp inní bílnum og sparka því svo duglega áfram nokkru sinnum :)

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 27. Feb 2010 09:00 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Náði teppinu úr í gær og ég geri ráð fyrir að skera bara strax úr því þar sem það fer undir miðstöðina! :lol: (eða hringja bara í Máza! :lol:

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 27. Feb 2010 10:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
iar wrote:
Náði teppinu úr í gær og ég geri ráð fyrir að skera bara strax úr því þar sem það fer undir miðstöðina! :lol: (eða hringja bara í Máza! :lol:



Það sést akkúrat ekki neitt ef maður gerir það, skella svo bara smá bút undir þar sem miðstöðvardótið kemur niður svo það liggi ekki utan í boddýinu

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 9 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group