bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Olíublaut kerti í e39 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=42992 |
Page 1 of 1 |
Author: | Ívarbj [ Sat 13. Feb 2010 16:33 ] |
Post subject: | Olíublaut kerti í e39 |
Sælir, Ég var að kíkja á kertin hjá mér og voru 4 af þeim olíublaut og það alveg frekar mikið. Ef ég stend fyrir framan húddið þá eru 2 vinstramegin nær mér þurr og sama á við um hægrameginn en hin 2 fjær báðum meginn eru útötuð í olíu, ég athugaði hvort þau væru hert og voru þau öll alveg pikkföst og auðvitað þurrkaði ég þau öll í leiðnni. Hefur einhver hugmynd um hvað getur verið að, ný kerti? Þess má geta að fyrir viku síðan komu upp skriðvarnarljósið, abs ljósið og spólvarnarljósið í mælaborðinu (líklegast skynjari). En eftir þetta þá hefur bíllinn verið að koka svolítið (stundum) þegar ég gef honum inn (yfir 3000 snúninga) Stundum kokar hann í 2 gír en alltaf í 3 gír þegar gefið er inn en ekkert í 1, 4 og 5 gír. Svo spurningin er sú, ætli þetta kok tengis ABS dótinu og því (þar sem þetta byrjaði eftir að ljósin poppuðu upp) eða getur þetta verið eitthvað annað, kanski kertin? Kv. Ívar |
Author: | birkire [ Sat 13. Feb 2010 16:41 ] |
Post subject: | Re: Olíublaut kerti í e39 |
Myndi skipta um ventlalokspakkningar fyrst kertin eru öll í olíu, eina sem kemur til greina |
Author: | Ívarbj [ Sat 13. Feb 2010 16:50 ] |
Post subject: | Re: Olíublaut kerti í e39 |
birkire wrote: Myndi skipta um ventlalokspakkningar fyrst kertin eru öll í olíu, eina sem kemur til greina Takk fyrir þessa ráðleggingu, Er ekki þá best bara að skipta um ventlalokspakninguna, taka síðann upp kertin og jafnvel skipta um þau í leiðinni og þurka öll hólfin þar sem kertin fara ofaní og losna við alla þessa olíu sem kom frá þeim. Kv. Ívar |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |