Page 1 of 2

Verkfæri

PostPosted: Fri 12. Feb 2010 14:42
by Thrullerinn
Manni vantar alltaf verkfæri !!

Hvað mæla menn með, hvaða merki eru best miðað við verð?

Re: Verkfæri

PostPosted: Fri 12. Feb 2010 15:13
by Stebbtronic
Mín reynsla í svona dýrari verkfærum er að ef maður splæsir í Wurth verkfæri, t.d herslumæla, ventlatangir ofl þá eru það verkfæri sem maður á út lífið...

Re: Verkfæri

PostPosted: Fri 12. Feb 2010 16:47
by SævarSig
Getur farið út í wurth stalhwille svo sitthvað er nefnt en það eru kanski full dýr merki til að vera með í skúrnum.

Getur farið í logey í kópavogi (kársnesbraut) þeir eru með kraftwærk sem eru mjög fín verkfæri, eru samgjarnir á verð og með eilífðar ábyrgð.
Einnig gætiru farið í n1 þeir eiga að vera með umboðið fyrir förch sem er einnig fínt merki og eiga að vera með eilífðar ábyrgð einnig.

Re: Verkfæri

PostPosted: Fri 12. Feb 2010 16:51
by T-bone
eg hef mjög góða reynslu af toptul sem fæst i sindra, og svo lika kraftwerk.

Re: Verkfæri

PostPosted: Fri 12. Feb 2010 16:56
by Alpina
Snap on

http://www.snapon.com/



TEAM BE






einn ókostur = $$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$ og rúmlega það

Re: Verkfæri

PostPosted: Fri 12. Feb 2010 17:02
by Einarsss
hef góða reynslu af wurth verkfærum :)

Re: Verkfæri

PostPosted: Fri 12. Feb 2010 17:18
by Axel Jóhann
Kraftwerk og BETA verkfæri eru þau sterkustu og endingarbestu sem við notum niðrí vinnu hjá mér.

Re: Verkfæri

PostPosted: Fri 12. Feb 2010 18:20
by Bartek
BETA er málið :thup:

Re: Verkfæri

PostPosted: Fri 12. Feb 2010 18:26
by FrikkiGaur
Ég tek undir hjá Alpina..
Snap on! þar sem ég vinn notum við enþá yfir 30ára gömul snap on verkfæri.. bara solid!
en annars heimafyrir nota ég kraftwerk, ekkert dýrt og fín tól.

Re: Verkfæri

PostPosted: Sat 13. Feb 2010 08:33
by fart
Ég er með Kraftwerk að hluta, en svo er ég með eldgamalt topplyklasett í drulluvinnuna og er löngu búinn að brjóta öll skröllin. Er núna með frekra dýr skröll, því miður virðist það vera þannig að maður eyðir meira á því að kaupa ódýr verkfæri.

Þetta á helst við um moving objects eins og skröllin, liðamót á skröllum og svo skrúfjárn. Fastir lyklar og topparnir endast ágætlega þó þeir séu ódýrir, allavega í mínu tilviki, nema þegar maður er í átökum, þá brotnar þetta ódýra auðveldlega.

Go for Quality, þá áttu þetta for life.

Re: Verkfæri

PostPosted: Sat 13. Feb 2010 15:53
by Alpina
Hjá SNAP ON er boðið upp á TITAN húðuð verkfæri ,, t.d.svo hægt væri að nota í verkefni eins og hina margfrægu Lockheed SR 71 eða BLACKBIRD eins og flestir þekkja hana
.....

A particularly difficult issue with flight at over Mach 3 is the high temperatures generated. As an aircraft moves through the air at supersonic speed, the air in front of the aircraft is compressed into a supersonic shock wave, and the energy generated by this heats the airframe. To address this problem, high-temperature materials were needed, and the airframe of the SR-71 was substantially made of titanium,


man eftir að snap on auglýsti þetta á sínum tíma 8)

Re: Verkfæri

PostPosted: Sat 13. Feb 2010 16:15
by Aron Fridrik
pabbi er búinn að eiga craftsman sett síðan ég man eftir mér.. standa alltaf fyrir sínu :thup:


BETA eru líka alvöru.. fyrirtæki sem ég vann hjá var með mikið af BETA verkfærum og þau failuðu aldrei

Re: Verkfæri

PostPosted: Sat 13. Feb 2010 16:53
by gulli
SævarSig wrote:Getur farið út í wurth stalhwille svo sitthvað er nefnt en það eru kanski full dýr merki til að vera með í skúrnum.

Getur farið í logey í kópavogi (kársnesbraut) þeir eru með kraftwærk sem eru mjög fín verkfæri, eru samgjarnir á verð og með eilífðar ábyrgð.
Einnig gætiru farið í n1 þeir eiga að vera með umboðið fyrir förch sem er einnig fínt merki og eiga að vera með eilífðar ábyrgð einnig.


Meintirðu ekki Vesturvör... :lol:

Re: Verkfæri

PostPosted: Sat 13. Feb 2010 17:21
by Stefan325i
Facom er ótrúlega góð verkfæri en dýr en það að eilífðarábyrgð á þeim þannig að ef eithðva skemmist þá færð þú nýtt í staðinn.

Hefur reynt á þetta hjá mér með skrúfjárn, hef komið með brotinn skrúfjárn og fengið ný í staðinn.

Re: Verkfæri

PostPosted: Sat 13. Feb 2010 19:35
by gunnar
Stefan325i wrote:Facom er ótrúlega góð verkfæri en dýr en það að eilífðarábyrgð á þeim þannig að ef eithðva skemmist þá færð þú nýtt í staðinn.

Hefur reynt á þetta hjá mér með skrúfjárn, hef komið með brotinn skrúfjárn og fengið ný í staðinn.



Fór einmitt með nokkra toppa og eitt skrall í Ísól í sumar.. Fékk nýtt í staðinn. Asskoti gott.