bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Eitthvað í hjólabúnaðinum ? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=42887 |
Page 1 of 3 |
Author: | kalli* [ Tue 09. Feb 2010 01:06 ] |
Post subject: | Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
Eitthvað segir mér að ég hafi brotið eitthvað í bílnum mínum ![]() Hvað er ég búinn að gera núna ? |
Author: | Ingvarinn [ Tue 09. Feb 2010 15:29 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
kalli* wrote: Eitthvað segir mér að ég hafi brotið eitthvað í bílnum mínum ![]() Hvað er ég búinn að gera núna ? Ég myndi skjóta á dempara fóðringu. Það er allavega það fyrsta sem ég myndi kíkja á ef þetta er eins og þú lýsir því. Hugsa að það séu fleirri sammála mér þar... |
Author: | kalli* [ Tue 09. Feb 2010 18:44 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
![]() Er það númer átta á þessari mynd? |
Author: | Ingvarinn [ Tue 09. Feb 2010 20:06 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
kalli* wrote: ![]() Er það númer átta á þessari mynd? Myndi frekar halda að það sé gúmmíið sem númer 2 fer í gegnum en getur verið hvað sem er sem er með gúmmí fóðringu í demparanum |
Author: | Axel Jóhann [ Tue 09. Feb 2010 21:48 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
Nei, demparafóðringin er númer 8. |
Author: | SteiniDJ [ Tue 09. Feb 2010 22:32 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
Ég veit ekki hvernig best væri að lýsa þessu. Það er eins og demparinn sjálfur skýst upp í stað þess að fjaðra alveg og bankar smá í bílinn. |
Author: | Ingvarinn [ Tue 09. Feb 2010 22:50 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
Axel Jóhann wrote: Nei, demparafóðringin er númer 8. Ég lenti nú samt í því á gömlum bíl hjá mér að það var gúmmí fóðringin sem fór þarna sem boltinn fer í gegnum augað en hún var morknuð í burtu.. En samt sem áður þá er þetta pottþétt fóðring miðað við lýsingarnar á þessu |
Author: | kalli* [ Tue 09. Feb 2010 22:51 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
Ég spurði nú strák sem ég þekki og hann sagði einmitt að það væri þetta gúmmí líka... |
Author: | GunniT [ Wed 10. Feb 2010 00:23 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
ég myndi skjóta á spindilkúlu eða stýrisenda. |
Author: | kalli* [ Thu 11. Feb 2010 08:27 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
Halda þá flestir að þetta sé þetta númer 8 ? Það fer að líða að því að ég þarf að fara með bílinn í skoðun og ég veit ekki hvort að ég komist gegnum skoðunina nema ég lagi þetta. |
Author: | Einarsss [ Thu 11. Feb 2010 08:42 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
kalli* wrote: Halda þá flestir að þetta sé þetta númer 8 ? Það fer að líða að því að ég þarf að fara með bílinn í skoðun og ég veit ekki hvort að ég komist gegnum skoðunina nema ég lagi þetta. Þeir ættu þá að segja þér nkl hvað þú þarft að skipta um ef þeir taka eftir einhverju |
Author: | kalli* [ Sun 21. Feb 2010 16:39 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
Jæja smá update á þetta, Opnaði húddið og ákvað að skoða þetta eitthvað þrátt fyrir 0 kunnáttu mína á svona lagað. Held ég hafi rekist á eitthvað sem er ekki alveg eins og á að vera. ![]() Þetta sést um leið milli vélarinnar hjá hjólarbúnaðinum, og mér fannst það frekar skrítið að það skuli vera holótt þarna á milli svo ég kíkti nánar á þetta og sá þetta; ![]() ![]() (Sama fóðringin, litin út frá báðum hliðum.) Viti menn, þrátt fyrir enga kunnáttu mína á svona hlutum held ég að það sé alveg gefið að þetta á ekki að vera svona, sérstaklega þar sem það er svona hinum meginn. ![]() ![]() (Sami litinn út frá báðum hliðum) Fór svo inná realoem.com og kíkti á þetta, fann það þar, ![]() Virðist vera þetta númer sex, leitaði svo númerið uppi og þetta kallast víst ''Fóðring fyrir spindil'' inná bifreid.is . Nú er ég ekkert svo mikið að spá í verðið á vörunni sjálfri (7200 kall) heldur hverning ég á að fara að því að skipta þessu út ? Er það eitthvað mikið vesen ? Ekki það að ég fari að reyna þetta aleinn heldur reyni ég að fá einhvern með mér sem hefur eitthvað vit í þessu... Svo líka eitt, á neðstu myndinni þá er hin fóðringin litinn út fyrir að vera farin að ''flagna'' ef þið skiljið hvað ég á við, er þessi þá farin að fara líka ? Vona allavegana að ég hafi rétt fyrir mér með þetta, annars væri það mjög vandræðarlegt ![]() |
Author: | gardara [ Sun 21. Feb 2010 16:45 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
Myndi skipta um báðar fóðringarnar in case. Annars fer það eftir því hvort þú ferð í poly eða gúmmi hvort það þurfi að pressa fóðringuna í, það þarf með gúmmí en ekki poly. |
Author: | slapi [ Sun 21. Feb 2010 16:49 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
Held að þessar fóðringar séu ekki seldar öðruvísi en í setti, en áður en þú ferð í það þá myndi ég taka á spindilkúlunni og sjá hvort þú þurfir að taka spyrnuna undan þessvegna. |
Author: | gardara [ Sun 21. Feb 2010 16:52 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað í hjólabúnaðinum ? |
Getur keypt bara gúmmíið í TB, eða svo sögðu þeir mér þegar ég var að spyrjast fyrir... Endaði samt með því að fá mér treehouse racing fóðringar ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |