Samkvæmt partalistanum frá Alpina þá eru bremsudiskarnir og klossarnir að aftan þeir sömu og í 330D en frambremsan er með uppgefið partanúmer í listanum.
Dempararnir eru einnig með partanúmer en ætli þetta sé ekki einhver Bilstein fjöðrun.
Hægt er að finna listann hér:
http://www.thealpinaregister.com/downlo ... 20b333.pdfAllt sem heitir Alpina er alveg fáránlega dýrt í umboðinu hér en þú getur örugglega fundið aðra staði sem bjóða betri verð.
Ég hef verið að skipta við koed.dk í Danaveldi þegar mig vantar original Alpina parta. Hef svo bara tekið þá með mér í flugi þegar ég hef verið á ferðinni.
Félagi þinn getur svo haft samband við Alpina ef honum vantar frekari upplýsingar. Þeir hugsa vel um sína menn.
Svo máttu segja félaga þínum að ég eigi original límmiðasett á framspoilerinn ef hann hefur áhuga.